Nú ætlum við að skrifa smá pistil um German Burgos en þessi markmaður Atletico Madrid er í einu orði sagt snillingur.
![]() |
Argentínumaðurinn German Adrian Burgos er fæddur 16.apríl 1969 í Argentínu. Hann spilaði sinn fyrsta leik í Argentísku deildinni árið 1989. Hann spilaði með Ferrocarril Oeste til 1993 en þá skipti hann yfir í River Plate. Árið 1999 ákvað hann að fara yfir til Spánar og fór á sólskinseyjuna Mallorca og spilaði með heimamönnum til 2001 en þá skipti hann yfir í Atletico Madrid og leikur hann þar enn þann dag í dag.
Hann hefur spilað fyrir landslið Argentínu en tilkynnti í nóvember síðastliðnum að nú væri gott komið og er nú hættur að leika með landsliðinu. Hann var í hópnum hjá Argentínu á HM í sumar.
Burgos hefur unnið nokkra bikara í heimalandinu en hann er nú frekar þekktur fyrir að vera mjög skrautlegur karakter. Hann tekur jafnan áhættu milli markstanganna og nýtur samt sem áður fulls traust liðsfélaga sinna. Meðal annars fékk hann einu sinn á sig mark úr aukaspyrnu frá miðju frá kollega sínum Jose Luis Chilavert en þá var Burgos staddur í vítateignum að spjalla við varnarmann sinn.
Hann hefur fengið gælunafnið "apinn" en hann er með mjög stóran faðm einnig er hann nokkuð "loðinn". Athygli vakti til dæmis um seinustu helgi þegar að Burgos var með derhúfu í grannaslagnum á móti Real Madrid. Það er svo sem ekki merkilegt nema fyrir þær sakir að enginn sól var því að þetta var um kvöld.
Hann hefur gaman af því að fíflast í sjónvarpsmyndavélum og hefur gert það oftar en einu sinni.
![]() |
Hann er einnig sjálfur rokkari. Hann hefur gefið út 2 plötur "Jaque al rey" og "Fasolera de tribunas". Hann er ekki síður þekktur sem rokkari í heimalandi sínu en fótboltamaður.
Hann verður 34 ára á þessu ári en maður veit aldrei upp á hverju þessi skrautlegi markmaður tekur uppá næst !!




