lau 10. febrúar 2007 22:08
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Vefsíða Barcelona 
Rijkaard tjáir sig um afhverju Eiður Smári er ekki í liðinu
Eiður Smári fékk ekki sæti í leikmannahóp Barcelona.
Eiður Smári fékk ekki sæti í leikmannahóp Barcelona.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Eins og við greindum frá fyrr í dag verður íslenski landsliðsfyrirliðinn, Eiður Smári Guðjohnsen, ekki í leikmannahópi Barcelona sem mætir Racing Santanter í spænsku deildinni annað kvöld. Eiður er ekki meiddur sem stendur heldur komst hann einfaldlega ekki í liðið.

Lionel Messi og Ronaldinho snúa aftur í leikmannahópinn, sá fyrrnefndi eftir langan tíma frá vegna meiðsla. Þá er Samuel Eto´o kominn aftur í hópinn og með alla bestu framherjana þrjá í hópnum var ekki pláss fyrir Eið Smára.

,,Þegar maður velur 18 leikmenn, þá verður einhver að vera skilinn eftir," sagði Rikjaard í dag aðspurður um afhverju Eiður Smári er ekki í leikmannahópnum á morgun.

,,Þetta er eitthvað sem við ákveðum frá leik til leiks. Ég er með þrjá framherja og við þörfnumst þess að þeir séu allir í formi."
Slapp
banner