Heimild: AS
Ronaldinho að fitna
Spænska íþróttablaðið AS birtir myndir á vefsetri sínu í dag þar sem að Ronaldinho, besti knattspyrnumaður heims árið 2004 og 2005 er myndefnið.
Þar sést annarsvegar mynd af Ronaldinho berum að ofan eftir 3-3 jafntefli gegn Real Sociedad í nóvember árið 2003. Hins vegar er mynd af honum eftir leik liðsins gegn Liverpool í Meistaradeildinni í fyrradag þar sem að sést að hann hefur fitnað þónokkuð á þessum tíma.
Ronaldinho hefur ekki verið í sínu besta formi að undanförnu en hann var sendur í erfiðar æfingar í janúar sem áttu að koma honum í betra form.
Hins vegar var hann ekki upp á sitt besta gegn Liverpool en spennandi verður að sjá hvort þessi magnaði Brasilíumaður finni ekki sitt gamla form á næstunni.


