fös 02. mars 2007 16:43
Hafliði Breiðfjörð
Söngvari Jeff Who? með endurkomu í boltann í Víkinni
Bjarni Lárus Hall kominn í Berserkjabúninginn í dag.
Bjarni Lárus Hall kominn í Berserkjabúninginn í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni tekur í hönd Kristjáns Sigurðar F. Jónssonar þjálfara við undirskriftina í dag.
Bjarni tekur í hönd Kristjáns Sigurðar F. Jónssonar þjálfara við undirskriftina í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Lárus Hall, Kristján Sigurður F. Jónsson og Einar Guðnason voru ánægðir er þeir skrifuðu undir samninginn.
Bjarni Lárus Hall, Kristján Sigurður F. Jónsson og Einar Guðnason voru ánægðir er þeir skrifuðu undir samninginn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni og Einar hressir eftir að hafa skrifað undir.
Bjarni og Einar hressir eftir að hafa skrifað undir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Lárus Hall söngvari rokksveitarinnar vinsælu Jeff Who? hefur ákveðið að taka fram skóna á ný. Bjarni sló í gegn ásamt Jeff Who? síðasta sumar með laginu Barfly sem tröllreið öllum vinsældarlistum og varð í lok árs valið vinsælasta lag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum og lag ársins á tónlistarverðlaunum FM957.

Bjarni sem lék á sínum tíma 62 leiki með Víkingum, síðast í leik með U23 ára liði félagins fyrir tveimur árum síðan, hefur nú tekið ákvörðun um að taka fram skóna á ný og spilar að sjálfsögðu áfram í Víkinni.

Hann ætlar þó ekki að leika með Víkingum heldur með nýstofnuðu liði Berserkja sem stofnað er af Víkingum til að leika í þriðju deildinni. Við hittum Bjarna í dag er hann skrifaði undir samning við sitt nýja félag, Berserki, í Víkinni.

,,Það eru þrjú ár síðan ég spilaði síðast en ég spilaði þó fyrri hálfleikinn með U23 ára liðinu á móti Blikum fyrir tveimur árum. Sumarið 2005," sagði Bjarni í samtali við Fótbolta.net í dag. ,,Í 45 mínútur var ég þokkalegur, en ég var samt búinn eftir 20 sko en ég vildi ekki fara útaf í fyrri hálfleik, frekar í hálfleik, það lítur betur út," bætti hann við hlægjandi.

Bjarni sem verður 28 ára gamall á þessu ári spilaði síðast með Víkingum í Landsbankadeildinni árið 2004 er hann lék 10 leiki með liðinu. Hann á í heildina að baki 62 leiki með Víkingum og hefur skorað í þeim 3 mörk.

,,Ég var alltaf meiddur," sagði Bjarni aðspurður afhverju hann hafi hætt að spila með liðinu. ,,Svo nennti ég ekki að vera alltaf að mæta sex sinnum í viku klukkan eitthvað ákveðið og eyða þremur tímum í það," bætti hann við og neitar ekki að það hafi verið poppstjörnulífið sem heillaði hann. ,,Já það heillaði ágætlega. Það var svona meira 'easy going'."

Meiðslin trufla Bjarna þó ennþá en hann ætlar sér að fara rólega af stað og missir af fyrstu æfingu liðsins nú í kvöld en stefnir ótrauður á aðra æfinguna eftir helgi.

,,Ég er í ágætisformi held ég, jájá ég er í fínu formi. Ég er búinn að vera að hlaupa aðeins og tók tvær vikur í hreyfingu. Svo eru það bara meiðslin sem er það eina sem ég er hræddur við en ef maður æfir aðeins minna, kannski ekki alveg hvern einasta dag, þá verður það allt í lagi. Ég er alltaf með verki í mjóbakinu sem leiðir niður í nára."

Bjarni þótti mjög sterkur miðjumaður í liði Víkinga áður en hann þurfti að gefa það upp á bátinn vegna meiðslanna og enn í dag tala sumir Víkingar um að hann gæti styrkt miðjuna ef hann færi á fullt í boltann. Við spurðum Bjarna hvort hann væri klár í það ef hann kemst á gott flug í sumar.

,,Jájá, ef einhver vill. En mér finnst svolítið óþægilegt að tala um það núna, ég vil bara byrja á þessu. Við sjáum bara hvað gerist svo þegar ég fer á völlinn, hvernig þetta verður og hvort ég geti eitthvað. Ég hef ekki hugmynd sjálfur um stöðuna á mér. En ég veit að þetta verður skemmtilegt allavega."

Hljómsveitin Jeff Who? vakti gífurlega athygli síðasta sumar og þá sérstaklega fyrir lagið fræga, Barfly, sem þótti einkar fjörugt og var mikið spilað á fótboltavöllum landsins, og þá sérstaklega í Víkinni. Lagið hljómaði ætíð er Víkingar skoruðu mark í sumar en nú hefur verið orðrómur um að hljómsveitin sé hætt. Bjarni segir hinsvegar ekkert til í því og ætlar að vera á fullu með hljómsveitinni og í boltanum næsta sumar.

,,Nei ég er ekki hættur í poppinu," sagði Bjarni ákveðinn. ,,Við erum að taka upp núna og erum að fara að setja í spilun lag og ætlum að klára á morgun. Svo við erum að fara að minna á okkur, bæði til að koma í veg fyrir þessar spurningar alltaf afhverju við séum hættir, við erum ekkert hættir sko, erum komnir með nýjan hljómborðsleikara og þá er þetta allt að koma."

Bjarni þarf því að tvinna saman hlutverk sitt í hljómsveitinni og liði Berserkja. Við spurðum hann hvort hann ætti nú eftir að mæta beint á völlinn á laugardögum eftir svefnlausar nætur hljómlistarlífsins.

,,Við skulum nú halda því í lágmarki samt, Kristján er nú með aga sko," sagði Bjarni og vísar í Kristján Sigurður F. Jónsson sem hefur verið ráðinn þjálfari liðsins. Kristján var á síðustu leitíð aðstoðarþjálfari Víkinga.

,,Það þýðir ekki að mæta beint eftir tónleika," sagði Bjarni og vísaði orðum sínum til Kristjáns sem neitaði. ,,Nei það gengur ekki sko," bætti Bjarni við. ,,Ég geri það sem þjálfarinn segir og svo sjáum við bara til hvernig ég verð. "

Bjarni sagði að nú verði Barfly nýja Berserkjalagið næsta sumar og bætti við: ,,Nú ætla ég að rífa það af Víkingum, nú mega þeir ekki spila það. Ég ætla að banna það og bara Berserkir mega spila það."

Auk þess að semja við Bjarna um að leika með liðinu næsta sumar og Kristján um að verða þjálfari hafa Berserkir einnig fengið Einar Guðnason úr Víkingum til að leika með liðinu og verða aðstoðarþjálfari. Einar hefur átt við erfið meiðsli að stríða og hefur lítið getað leikið en vonast til að verða klár í slaginn þegar tímabilið hefst í sumar.
Slapp