Heimild: BBC
Ball sparkaði í Ronaldo sem lá á vellinum (Með myndbandi)
Ljótt atvik átti sér stað í grannaslag Manchester City og Manchester United í gær. Michael Ball leikmaður Manchester City sparkaði þá í magann á Cristiano Ronaldo sem lá eftir á vellinum eftir að hafa misst boltann. Ronaldo fiskaði síðar í leiknum vítaspyrnu sem hann skoraði sjálfur úr og tryggði United sigurinn.
Rob Styles dómari leiksins sá ekki atvikið þegar að Ball sparkaði í magann á Ronaldo en Sir Alex Ferguson var allt annað en sáttur eftir að brotið átti sér stað í leiknum og var hann reiður á hliðarlínunni.
,,Hann var fórnarlamb mjög alvarlegrar árásar snemma í leiknum og á þeim tímapunkti leit út fyrir að dómarinn gæti misst tökin," sagði Ferguson eftir leikinn.
Stuart Pearce stjóri Manchester City ætlar að skoða atvikið á myndbandsupptöku áður en hann ákveður hvort hann muni refsa Ball.
,,Fólk hefur nefnt tæklinguna við mig og er ekki ánægt með það sem gerðist en ég hef ekki séð þetta. Ég mun skoða atvikið á myndbandsupptöku og mun taka ákvörðun eftir það," sagði
Pearce meðal annars en ekki er ólíklegt að enska
knattspyrnusambandið skoði atvikið nánar.
Hér að neðan má sjá myndband af þessu ljóta broti en það má einnig nálgast með því að smella hér.

