Heimild: Vefsíða Barcelona
Eiður Smári nýklipptur í leikmannahópi Börsunga
Eiður Smári Guðjohnsen landsliðsfyrirliði Íslands er að venju í leikmannahópi Barcelona sem mætir Getafe í spænsku deildinni um helgina en á vefsíðu Börsunga er fjallað um nýja hárgreiðslu kappans sem hefur látið taka vel af toppnum.
Eiður Smári var annar leikmaður Barcelona sem kom með nýja sumarklippingu á æfingu í vikunni því áður hafði portúgalski Barsilíumaðurinn Deco gert það sama.
Tveir aðrir framherjar hjá Barcelona, Javier Saviola og Santi Ezquerro komast ekki í leikmannahópinn að þessu sinni og sama má segja um Sylvinho. Þá er Rafael Marques frá kepni vegna meiðsla.
Hópurinn: Valdés, Jorquera, Puyol, Xavi, Edmilson, Zambrotta, Iniesta, Eto'o, Belletti, Eiður Smári Guðjohnsen, Gio, Motta, Oleguer, Ronaldinho, Deco, Messi, Giuly og Thuram.


