Var Pétur Jóhann með Tevez og Anderson á Old Trafford?
Var Pétur Jóhann Sigfússon grínistinn góðkunnugi með Carlos Tevez og Anderson á Old Trafford síðastliðin sunnudag á leik Manchester United og Reading?
Eins og sést á meðfylgjandi mynd er maðurinn fyrir ofan þá nauðalíkur Pétri Jóhanni en samkvæmt áræðanlegum heimildum Fótbolta.net er þetta ekki Pétur.
En eins og kom fram í viðtali við Pétur Jóhann árið 2004 er hann stuðningsmaður United en það er eina liðið sem hann þekkir í deildinni.
Sjá einnig:
Viðtal við strákana í 70 mínútum um fótbolta


