Eyjólfur útskýrir af hverju hann er í símanum á meðan leik stendur
Athygli vakti í leik Íslands og Spánverja í kvöld að Eyjólfur Sverrisson þjálfari Íslands var oft á tíðum í símanum á meðan leiknum stóð.
Á meðan leiknum stendur er Bjarni Jóhannsson aðstoðarþjálfari Íslands uppi í stúku til að hafa betri yfirsýn yfir völlinn.
,,Ég var að tala við Bjarna aðstoðarþjálfara sem var uppi og er með betri yfirsýn á það hvort að færslurnar séu í lagi og við erum svona að fara yfir það," sagði Eyjólfur í samtali við Fótbolta.net.
,,Þetta er virkilega árangursríkt og svo getur maður komið þessum skilaboðum til skila því yfirleitt sér maður ekki hvort að leikmaðurinn er kominn of utarlega eða of innarlega," sagði Eyjólfur að lokum.
