fim 04. október 2007 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Ítalska deildin
Dida gerði sig að athlægi með leikaraskap í kvöld (Myndband)
Dida markvörður AC Milan gerði sig að athlægi í leik liðsins gegn Glasgow Celtic í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Eftir að Celtic skoraði sigurmarkið á 90. mínútu leiksins hljóp stuðningsmaður skoska liðsins inn á völlinn í fögnuðinum og setti hönd fyrir neðan andlit Dida án þess að um eiginlegt högg hafi verið að ræða samkvæmt myndum. Dida hljóp á eftir áhorfandanum eins og ekkert amaði að en lét sig svo falla með tilþrifum og leikaraskapurinn mikill.

Dida lét ekki staðar numið þarna því hann lá áfram á vellinum og lét bera sig útaf og þóttist illa slasaður.

Á myndbandsupptökum sést greinilega að um leikaraskap er að ræða hjá brasilíska markverðinum sem virðist ekki hafa áttað sig á því að í Meistaradeildarleikjum er fullt af myndavélum sem mynda atburði kvöldsins.

Myndband af atvikinu er þegar komið út á netið en það má sjá á vefsíðu DailyMotion.

Smelltu hér til að sjá myndbandið af vefsíðu DailyMotion.
Slapp