mið 17. október 2007 20:31
Hafliði Breiðfjörð
Hver verður ráðinn þjálfari íslenska landsliðsins?
Er kominn tími á Willum Þór eða Ólaf Jóhannesson?
Er kominn tími á Eyjólf Sverrisson?
Er kominn tími á Eyjólf Sverrisson?
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Willum Þór Þórsson hefur náð frábærum árangri með Val.
Willum Þór Þórsson hefur náð frábærum árangri með Val.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Væri rétt að bjóða Guðjóni eða Ólafi landsliðsþjálfarastöðuna?
Væri rétt að bjóða Guðjóni eða Ólafi landsliðsþjálfarastöðuna?
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Nú eru aðeins 12 dagar í að samningur Eyjólfs Sverrrissonar við KSÍ um að þjálfa landslið Íslands rennur út en 14. október 2005 skrifaði hann undir samning við sambandið sem rennur út nú 31. október 2007.

Reyndar á liðið enn eftir að leika einn leik á árinu en sá leikur verður eftir að samningur Eyjólfs rennur út. Það er lokaleikur Íslands í undankeppni EM 2008 gegn Danmörku ytra 21. nóvember næstkomandi.

Það er því ljóst að KSÍ mun fljótlega semja við þjálfara til að stýra landsliðinu í komandi verkefnum næsta árs hvort sem um verði að ræða nýjan samning við Eyjólf eða hvort nýr maður verði ráðinn í hans stað.

Eyjólfur hefur legið undir mikilli gagnrýni fyrir frammistöðu landsliðsins undir hans stjórn og því ekki ólíklegt að álykta sem svo að ekki verði endurnýjaður samningur við hann enda árangur liðsins undir hans stjórn langt undir væntingum sem náði botni með 3-0 tapi gegn Liechtenstein í kvöld.

Þegar litið er yfir þá kosti sem eru í stöðunni verður að byrja að líta á tvo sigursælustu þjálfara íslenskrar knattspyrnu undanfarin ár, Ólaf Jóhannesson og Willum Þór Þórsson.

Ólafur Jóhannesson hætti nú nýlega með FH eftir fimm ár í starfi og á þeim tíma gerði hann liðið þrisvar að Íslandsmeisturum og einu sinni að bikarmeisturum.

Hann hefur á þjálfaraferli sínum komið víða við og kom meðal annars Skallagrími upp í efstu deild árið 1997 og í ár vann hann þrjá af fjórum mögulegum titlum með FH. Deildabikarmeistarar, Meistarar meistaranna og bikarmeistarar.

Willum Þór hefur unnið allt sem hægt er að vinna með félagslið hér á landi. Undir hans stjórn hefur hann unnið allar deildir, þriðju deild, 2. deild, 1. deild og Landsbankadeildina en hann vann þá síðastnefndu í þriðja sinn í síðasta mánuði. Auk þess hefur hann stýrt liði til sigurs í bikarkeppninni, leik meistara meistaranna, deildabikar og Reykjavíkurmóti.

Þegar Eyjólfur Sverrisson tók við íslenska landsliðinu árið 2005 hafði hann litla reynslu af þjálfun því hans eina þjálfarastarf hafði verið með U21 árs landslið Íslands í tvö ár. Hann hefur sjálfur ítrekað sagt að hann vilji ekki hætta með liðið og því má ekki útiloka að hann haldi áfram ef það er ósk KSÍ.

Þegar talað er um mögulega landsliðsþjálfara má þó aldrei gleyma einum af okkar bestu þjálfurum sem er Guðjón Þórðarson. Undir hans stjórn náði landsliðið frábærum árangri og hann hefur sýnt það með lið ÍA í sumar að hann þarf ekki besta efniviðinn til að ná árangri.

Þá hefur frændi hans Sigurður Jónsson náð góðum árangri með lið Djurgården í Svíþjóð og gæti verið í myndinni.

Ný könnun hefur verið sett á forsíðu Fótbolta.net þar sem spurt er hvern fólk vill fá sem næsta landsliðsþjálfara. Við hvetjum fólk til að setja fram sitt álit.

Valkostirnir sem við bjóðum upp á eru að endurráða Eyjólf, ráða Ólaf Jóhannesson, Willum Þór Þórsson, Guðjón Þórðarson, Sigurð Jónsson eða einhvern annan.

Við hvetjum alla til að taka þátt í könnuninni og gefa okkur sitt álit.
Slapp
banner
banner