lau 03. nóvember 2007 17:37
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Reuters | Sky 
Sir Alex Ferguson: Skammarlegt að lenda í þessum svívirðingum
Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United segir að það hafi verið einbeitingaleysi leikmanna sinna sem kostaði þá sigurinn á Arsenal í toppleik ensku úrvalsdeildarinnar í dag en William Gallas jafnaði metin fyrir Arsenal í uppbótartíma. Hann er einnig mjög ósáttur við dómara leiksins og gagnrýndi einnig öryggisgæslu á Emirates leikvangnum.

,,Við héldum að við hefðum gert nóg til að vinna þetta, en svona er fótboltinn og ég trúði því ekki þegar við hentum þessu frá okkur í lokin," sagði Ferguson eftir leikinn.

,,Þetta var einbeitingarleysi í báðum mörkunum. Í fyrra markinu þeirra hefðum við átt að hreinsa boltann frá í horn en gerðum það ekki. Við töpuðum á því."

,,Mér fannst við spila vel, við höfðum boltann mikið og áttum betri tækifæri. Við stýrðum leiknum en í lokin þegar seinna mark þeirra kom, misstum við máttinn og þeir skoruðu."


Ferguson telur hinsvegar að United hafi átt að fá aukaspyrnu áður en Gallas jafnaði metin og ásakar Howard Webb dómara leiksins um að hafa verið hræddan við að dæma.

,,Mér finnst að Howard Webb eigi frábæra möguleika á að verða topp dómari en í dag var leikurinn stór hjá honum og á stundum lét hann Arsenal hagnast á því," sagði Ferguson við MUTV.

,,Síðara mark þeirra kom eftir að hann dæmdi ekki aukaspyrnu á brot á Louis Saha á kantinum. Við hefðum átt að fá aukaspyrnu. Þetta er mjög erfitt fyrir dómarann. Á bekknum okkar lentum við í miklum níð frá fólki sem var tvö til þrjú fet frá okkur."

,,Það þarf að bæta öryggismálin hérna. Það er skammarlegt að lenda í svona svívirðingum eins og ég og starfsfólkið urðum fyrir. Það er ýmislegt öskrað og kallað á mann og það er virkileg hætta hérna."


,,Mér fannst við hafa hent þessu frá okkur. Í stöðunni 2-1 finnst manni sem maður hafi unninn leik í höndunum og ég get sagt ykkur að það er mjög erfitt að taka því að þeir skuli skora annað markið svona, og að við skulum gefa það í uppbótartíma. Þetta er eins og að sleppa úr fangelsi fyrir þá."

,,Við töluðum um það í hálfleik, hversu mikilvægt það væri að leyfa þeim ekki að koma til baka og við byrjuðum síðari hálfleikinn vel og svo fáum við á okkur mark eftir að hafa átt sjálfir innkast við þeirra hornfána. Þetta er ótrúlegt, þetta er glæpsamlegt."


,,Eftir jöfnunarmarkið sótti Arsenal á okkur í fimm til tíu mínútur en svo virtist sem þeir væru að leita eftir jafntefli. Ég sætti mig aldrei við jafntefli. Við sendum lið út með hæfileika til að vinna leiki og við reynum að vinna leiki."

,,Við komumst vel inn í þetta eftir jöfnunarmarkið og Wayne Roonney átti frábært tækifæri. Sóknarleikur okkar var á stundum frábær. Fótboltinn okkar var ógnandi á stundum. Í svona spennuþrungnum leik hlutu að verða tækifæri. Við fengum okkar og þeir þeirra."

Slapp