Heimild: Sport.es
Hvað var Eiður Smári að gera í Mílanó?
Spænska dagblaðið, Diario Sport, greindi frá því um helgina að Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður Börsunga, hefði orðið á vegi stuðningsmanns félagsins á flugvellinum í Barcelona þann 25. síðasta mánaðar einungis tveimur tímum áður en hann átti að mæta á æfingu hjá Katalóníuliðinu.
Eiður Smári sást ganga út úr flugvél sem kom frá Mílanó á Ítalíu en hann hafði átt stjörnuleik fyrir Barcelona tveimur dögum fyrr í markalausu jafntefli gegn Glasgow Rangers í Meistaradeildinni.
Blaðið veltir því fyrir sér, meira í gríni en alvöru, hvort landsliðsfyrirliðinn hafi verið í verslunarleiðangri í Mílanó eða í viðræðum við lið staðsett þar í borg?


