Heimild: Vefsíða Barcelona
Eiður Smári einn fjögurra á æfingu Barcelona
Það var heldur betur fámennt á æfingu hjá spænska stórliðinu Barcelona í dag því aðeins fjórir leikmenn mættu á æfingu og einn þeirra var Eiður Smári Guðjohnsen landsliðsfyrirliði Íslands.
Ástæða þessa er að meirihluti leikmannahópsins er þegar farinn til æfinga með landsliðum sínum sem flest leika á laugardag í undankeppni EM 2008.
Íslenska landsliðið á reyndar ekki leik fyrr en á miðvikudaginn í næstu viku og því kemur íslenski hópurinn ekki saman fyrr en á laugardaginn næstkomandi í Kaupmannahöfn. Eiður Smári æfir því enn með Barcelona þar til hann fer til Kaupmannahafnar.
Barcelona lék gegn Alcoyano í spænska bikarnum í gærkvöld og eftir 3-0 sigur í leiknum splundraðist hópurinn í allar áttir, það er að segja þeir leikmenn sem voru ekki þegar farnir.
Luionel Messi, Gabriel Milito og Ronaldinho fóru þannig á laugardag en þeir leika með Argentínu og Brasilíu. Thierry Henry, Eric Abidal og Lilian Thuram eru farnir í herbúðir franska landsliðsins, Gianluca Zambrotta í herbúðir ítalska landsliðsins og Carles Puyol, Xavi og Andrés Iniesta eru með spænska landsliðinu. Þá er Bojan Krkic farinn til æfinga með spænska U21 árs landsliðinu fyrir leik liðsins.
Það voru því aðeins fjórir leikmenn úr aðalliðshópnum sem æfðu með Barcelona í morgun, þeir Víctor Valdés, Albert Jorquera, Sylvinho og Eiður Smári. Þeir þrír síðastnefndu léku leikinn í gær en Valdes var á bekknum.
Santi Ezquerro er að jafna sig eftir meiðsli og æfði því einn og þeir Yaya Touré og Oleguer Presas ákváðu að æfa frekar í tækjasalnum. Þá missti Giovani Dos Santos af æfingunni vegna ökklameiðsla sem hann varð fyrir í gær en hann verður klár að nýju í næstu viku.
Að lokum vantaði Rafael Marquez á æfinguna en hann lék með Barcelona í gær eftir að hafa misst af síðustu tveimur leikjum þar á undan. Hann var ekki á æfingunni í dag þar sem hann hefur fengið leyfi félagsins til að sinna persónulegum málum fram á laugardag.

