mán 24. desember 2007 13:58
Þórður Már Sigfússon
Heimild: El Mundo Deportivo 
El Mundo Deportivo: Hvar var Eiður klukkan sjö í gærkvöldi?
Spænskir fjölmiðlar furða sig á þeirri ákvörðun Frank Rijkaards, knattspyrnustjóra Barcelona, að kippa Eiði Smára Guðjohnsen út úr byrjunarliðinu í risaslagnum gegn Real Madrid í gærkvöldi.

Pitu Abril, dálkahöfundur í El Mundo Deportivo, er til að mynda stóryrtur í garð Hollendingsins en hann hafði spáð því með fullri vissu að Eiður Smári yrði í byrjunarliðinu í leiknum sem Real sigraði 1-0.

,,Eiður hefur verið besti leikmaður liðsins að undanförnu og með mikilli baráttu, hraða sínum og leikni ásamt góðum hreyfanleika hefur hann náð að koma jafnvægi á miðjuspilið,” sagði Abril og bætti við:

,,Ef við göngum út frá því að þeir leikmenn sem eru í besta forminu, líkamlega og andlega, eigi að spila þá leikur enginn vafi á því að Eiður átti að byrja inná í leiknum. Þess í stað kaus Rijkaard að velja Deco, sem er í lélegri leikæfingu, í byrjunarliðið,” sagði Abril og gagnrýndi einnig þá ákvörðun Rijkaards að setja mexíkanska ungstirnið Giovani inná fyrir útkeyrðan Deco en ekki Eið Smára.

Að lokum gat Abril enn ekki leynt undrun sinni á fjarveru íslenska landsliðsfyrirliðans í gærkvöldi.

,,Hvar var hinn ljóshærði Eiður Smári Guðjohnsen klukkan sjö í gærkvöldi?

Slapp