Heimild: Diario Sport
Diario Sport: Rijkaard treystir Eiði Smára ekki
Spænska dagblaðið, Diario Sport, heldur því fram í dag að Frank Rijkaard, knattspyrnustjóri Barcelona, hafi einfaldlega ekki treyst Eiði Smára Guðjohnsen til þess að valda hlutverki sínu í leiknum gegn Real Madrid um síðustu helgi.
,,Það er augljóst að með því að taka Deco umfram Eið í byrjunarliðið hafi Rijkaard sýnt Íslendingnum mikið vantraust vegna þess að Deco var augljóslega ekki leikfær,” segir í frétt blaðsins í dag.
Eiður Smári hefur verið einn besti leikmaður Barcelona liðsins að undanförnu og var blaðamaður Diario Sport einnig undandi á því að hann skuli hafa dúsað á varamannabekknum allan leikinn því hriplekt miðjuspil Börsunga hafi verið algjör gósentíð fyrir Real Madrid.

