Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 16. nóvember 2010 18:35
Magnús Már Einarsson
Heimild: Reuters 
Charles Itandje fær að leika með landsliði Kamerún
Mynd: Getty Images
Charles Itandje, markvörður Liverpool, hefur fengið leyfi frá FIFA til að leika með landsliði Kamerún.

Itandje, sem er 28 ára, er með tvöfalt ríkisfang og því hefur FIFA leyft honum að leika með Kamerún í framtíðinni.

Itandje lék á árum áður með franska U21 árs landsliðinu en hann á ekki A-landsleik að baki með Frökkum.

Hann mun nú fara í æfingabúðir með landsliði Kamerún í Frakklandi í þessari viku.

Itandje kom til Liverpool árið 2007 en hann hefur ekki ennþá leikið deildarleik með liðinu og er mjög aftarlega í goggunarröðinni.
banner
banner