Heimild: Sporting Life
Liverpool hefur aflýst fréttamannafundi sem Roy Hodgson knattspyrnustjóri liðsins ætlaði að halda síðar í dag.
Hodgson heldur vikulega fréttamannafund og í dag ætlaði hann að halda fréttamannafund fyrir leikinn gegn Manchester United á sunnudag.
Hodgson hefur verið undir gífurlegri pressu og eftir 3-1 tap gegn Blackburn í fyrradag er staða hans mjög ótrygg.
Liverpool segir að þó að fréttamannafundurinn verði ekki í dag þá þýði það ekki að Hodgson sé að missa starfið.
Í tilkynningunni frá félaginu kemur fram að viðtal við Hodgson muni birtast á heimasíðu Liverpool síðar í dag þar sem að hann mun fara yfir leikinn gegn United.
Hodgson mætti sjálfur á æfingasvæði Liverpool klukkan 9:40 í morgun en mikill fjöldi fréttamanna fylgdist með þegar hann mætti á svæðið.