Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 25. janúar 2011 13:36
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Kenny Dalglish: Johnson hefur verið frábær í vinstri bakverðinum
Mynd: Getty Images
Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, telur að Glen Johnson eigi hrós skilið fyrir frammistöðu sína í vinstri bakverðinum í síðustu leikjum.

,,Glen Johnson hefur verið frábær í vinstri bakvarðarstöðunni í síðustu þremur leikjum. Ég man ekki eftir að einhver hafi farið framhjá honum," sagði Dalglish.

,,Að mínu mati er hann að gera okkur greiða. Þetta er ekki hans besta staða en hann hefur ekki kvartað neitt yfir þessu, þetta hefur ekki verið neitt vandamál og hann hefur bara farið út á völl og spilað."

,,Það er frábært og mér finnst að sýna hugarfar hans. Það að hann er að spila þarna og standa sig vel er frábært hjá honum."

,,Hann hugsar líka að Martin Kelly hefur staðið sig vel (í hægri bakverði) og það væri ósanngjarnt að taka hann út úr liðinu."

banner
banner