Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 28. janúar 2011 14:29
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Frank de Boer: 50% líkur á að Suarez fari
Mynd: Getty Images
Frank de Boer þjálfari Ajax segir 50% líkur á að Luis Suarez fari til Liverpool áður en félagaskiptaglugginn lokar á mánudag.

Liverpool hefur átt í viðræðum við Ajax undanfarna daga en þær viðræður hafa gengið erfiðlega hingað til.

,,Forráðamenn Liverpool eru komnir til Amsterdam til að ræða um Suarez. Ég held að það sé 50/50 að Suarez haldi áfram með okkur," sagði De Boer.

,,Þeir vita hvað við viljum fá fyrir Suarez. Luis er farinn þegar þeir borga þá upphæð. Ég bjóst við að þeir myndu koma með hærra tilboð."

Suarez hefur sjálfur áhuga á að fara til Englands en De Boer býst við að hann haldi áfram að standa sig með Ajax ef kaupin ganga ekki upp.

,,Hann skilur að við viljum ekki láta hann fara. Ég er líka vongóður um að hann muni gefa allt sitt með Ajax ef skiptin ganga ekki í gegn. Suarez skilur hvernig málin standa."
banner
banner
banner
banner
banner