Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   lau 14. maí 2011 19:39
Alexander Freyr Tamimi
Umfjöllun: Stjarnan byrjaði atlöguna að titlinum með sigri
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Stjarnan 3 – 0 Fylkir
1-0 Kristen Edmonds (´14)
2-0 Ashley Bares (´76)
3-0 Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir (´78)

Stjarnan vann í dag góðan 3-0 sigur gegn Fylki í Garðabænum í fyrstu umferð Pepsi deildar kvenna í Garðabænum í dag.

Stjörnunni var spáð góðu gengi fyrir sumarið og stilltu þær upp þremur nýjum leikmönnum frá Bandaríkjunum. Ashley Thomson var komin í markið í stað Söndru Sigurðardóttur sem fór til Jitex í Svíþjóð og auk þess voru þær Kristen Edmonds og Ashley Bares komnar í liðið. Hins vegar voru þær Katie McCoy, Lindsay Schwarz og Laura King haldnar aftur til Bandaríkjanna ásamt Rachel Rapinoe sem spilaði síðustu leikina í fyrrasumar.

Fylkisliðið var óbreytt í fyrra að undantekinni Heiðu Dröfn Antonsdóttur sem kom í liðið frá Val.

Stjarnan byrjaði leikinn betur og komst yfir með marki á 14. mínútu frá hinni bandarísku Kristen Edmonds. Inga Birna Friðjónsdóttir átti þá fyrirgjöf inn í teiginn og Kristen kláraði vel Stjörnustúlkurnar voru meira með boltann fyrsta hálftímann og bætti Ashley Bares meðal annars við marki en það var dæmt af vegna rangstöðu.

Fylkisstúlkur unnu sig smám saman inn í leikinn án þess þó að vera að skapa sér teljandi færi. Þrátt fyrir að hafa barist vel tókst þeim því ekki að jafna metin fyrir leikhlé.

Leikurinn var fremur jafn til að byrja með í síðari hálfleik en hvorugt liðanna var þó að skapa sér nein færi af viti. Leikurinn einkenndist fyrst og fremst af miðjumoði en bæði lið vantaði herslumuninn. Sjálfsagt er hægt að skrifa það á hinn svokallaða vorbrag sem einkennir flest lið í byrjun móts.

Þegar líða tók á síðari hálfleikinn fóru Stjörnustúlkur að sækja í sig veðrið og var Kristen Edmonds einstaklega ógnandi. Eftir rúma klukkustund komst hún ein gegn Björk Björnsdóttur í markinu eftir frábæra sendingu inn fyrir en skot hennar var varið.

Fylkisstúlkur gerðu heiðarlega tilraun að marki þegar tuttugu mínútur voru eftir þegar Laufey Björnsdóttir átti gott skot lengst fyrir utan teig sem endaði í slánni. Ashley Thompson í markinu var heldur framarlega og munaði engu að boltinn hefði farið inn.

Skömmu síðar átti Ashley Bares gott skot utan teigs sem var framhjá markinu og var aðeins farið að lifna yfir leiknum. Stjarnan var meira ógnandi fram á við en þegar staðan var ennþá 1-0 gat allt gerst.

Bares var síðan aftur á ferðinni þegar tæpur stundarfjórðungur var eftir en þá bætti hún við marki fyrir Stjörnuna eftir hornspyrnu. Staðan því orðin 2-0 þegar lítið var eftir og sigur Stjörnunnar svo gott sem í höfn.

Einungis örfáum mínútum síðar skoraði Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir síðan þriðja markið eftir að hafa komist ein í gegn eftir góða sendingu frá miðjunni. Að vísu virtist varnarmaður Fylkis ætla að ná til boltans en hún rann hins vegar og var Soffía því komin ein í gegn og þrumaði hún knettinum af öryggi í vinkilinn.

Fátt markvert gerðist það sem eftir var leiksins og stóð Stjarnan því uppi sem sigurvegari. Þær byrja titilbaráttuna því af krafti og gefur þessi sigur þeim sjálfsagt gott sjálfstraust fyrir sumarið. Fylkisstúlkurnar börðust vel en töpuðu hins vegar fyrir betra liði í dag.
Slapp
banner