Ragnar fer ekki til Club Brugge
Belgíska úrvalsdeildarliðið Club Brugge hefur hætt við kaup á landsliðsmiðverðinum Ragnari Sigurðssyni, sem er á mála hjá IFK Gautaborg.
Forráðamenn Club Brugge höfðu gert sér vonir um að fá leikmanninn í sínar raðir í sumar en svo virðist sem að viðræður félagsins við IFK Gautaborg hafi ekki gengið sem skyldi og hefur belgíska liðið því ákveðið að leita á önnur mið.
Wim De Meyer, talsmaður Club Brugge, staðfesti þetta í samtali við Fótbolti.net í dag.
De Meyer sagði að Ragnar væri leikmaður sem Club Brugge hefði fylgst með í nokkurn tíma og að áhugi hafi verið til staðar á honum. Það hafi leitt til formlegra viðræðna við IFK Gautaborg en nú væri ljóst að ekkert yrði af félagaskiptunum.
Að öðru leyti vildi De Meyer lítið tjá sig um málið.
Ragnar á rúmt hálft ár eftir af samningi sínum við IFK Gautaborg en hann hefur gefið í skyn að hann vilji reyna fyrir sér í sterkari deild.



