Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   mán 30. maí 2011 22:09
Elvar Geir Magnússon
Umfjöllun: Ingimundur Níels hetja Fylkis gegn Keflavík
Fylkismenn fagna sigurmarki Ingimundar í kvöld.
Fylkismenn fagna sigurmarki Ingimundar í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fjalar Þorgeirsson og Valur Fannar í leiknum.
Fjalar Þorgeirsson og Valur Fannar í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Úr stúkunni.
Úr stúkunni.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fylkir 2 - 1 Keflavík
0-1 Jóhann Birnir Guðmundsson ('3)
1-1 Ingimundur Níels Óskarsson ('24)
2-1 Ingimundur Níels Óskarsson ('90)

Fylkismenn náðu í þrjú stig gegn Keflvíkingum í Pepsi-deildinni í kvöld. Ingimundur Níels Óskarsson var hetja Árbæjarliðsins en hann skoraði bæði mörk heimamanna, það síðara var sigurmark á lokamínútunni.

Keflvíkingar fengu óskabyrjun þegar Jóhann Birnir Guðmundsson skoraði fyrsta markið strax á þriðju mínútu. Nokkrum mínútum síðar fékk Adam Larsson svo dauðafæri eftir fast leikatriði til að bæta við öðru marki Keflavíkur en Fjalar Þorgeirsson varði vel í markinu,

Hægt og rólega náðu heimamenn að vinna sig inn í leikinn og jöfnunarmarkið lá í loftinu þegar Ingimundur náði að skora. Fyrir markið hafði Fylkir átt stangarskot og Ingimundur farið illa með mjög gott færi.

Hann gerði hinsvegar frábærlega á 24. mínútu þegar hann skoraði með ,,hálfri hjólhestaspyrnu" eins og hann orðaði það sjálfur eftir leik. Hann klippti boltann glæsilega í netið og ekki var undirbúningur Alberts Brynjars Ingasonar heldur slæmur.

Fjörugur fyrri hálfleikur en sá síðari var hinsvegar afskaplega tíðindalítill og virtist allt benda til þess að jafntefli yrði niðurstaðan. Heimamenn voru þó skrefinu framar og voru örlítið öflugri. Það var því alls ekki ósanngjarnt þegar Ingimundur Níels skoraði sigurmarkið þegar boltinn féll til hans á lokamínútu venjulegs leiktíma.

Ansi mikilvægur sigur hjá Árbæjarliðinu. Liðið var mjög jafnt í kvöld. Andrés Már Jóhannesson var frábær í fyrri hálfleik en lét minna að sér kveða í þeim síðari. Maður leiksins er þó alltaf hetjan Ingimundur Níels.

Keflvíkingum gekk illa í sóknaraðgerðum sínum í kvöld og virtist skorta hugmyndaflug fram á við stærstan hluta leiksins. Eftir góða byrjun gekk þeim illa að finna leið framhjá heimamönnum.

Fylkir: Fjalar Þorgeirsson (m), Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Valur Fannar Gíslason, Þórir Hannesson, Ingimundur Níels Óskarsson, Andrés Már Jóhannesson, Gylfi Einarsson (f), Albert Brynjar Ingason, Baldur Bett, Tómas Joð Þorsteinsson, Andri Þór Jónsson.

Keflavík: Ómar Jóhannsson (m), Adam Larsson, Haraldur Freyr Guðmundsson (f) , Goran Jovanovski, Einar Orri Einarsson, Jóhann Birnir Guðmundsson, Andri Steinn Birgisson, Guðmundur Steinarsson, Magnús Sverrir Þorsteinsson, Hilmar Geir Eiðsson, Viktor Smári Hafsteinsson.

Maður leiksins: Ingimundur Níels Óskarsson, Fylkir.
Dómari: Erlendur Eiríksson, dæmdi mjög vel.



Leik lokið

90 mín MARK! Það eina merkilega sem hefur gerst í þessum seinni hálfleik er mark hjá Fylki! Líklegt sigurmark hjá Ingimundi Níels. Boltinn féll fyrir hann í þvögu í teignum. Hann skoraði einnig fyrra mark Fylkis í leiknum!

Twitter: Garðar Ingi Leifsson
Seinni hálfleikur álíka leiðinlegur og það er leiðinlegt fyrir varnarmann að dekka hannes sig! Fylkir-Kef #hörmung #fotbolti

Twitter: Bjarni Helgason
Klappliðið er mætt í árbæinn, leiðinlegt fyrir valsara, vandræðalegt fyrir fylkismenn. Koma svo Fylkir, MIKLU betri! #fotbolti #áframfylkir

74 mín Albert Brynjar Ingason af velli hjá Fylki og inn kemur Kjartan Ágúst Breiðdal.

71 mín Menn farnir að geispa vel í blaðamannastúkunni enda seinni hálfleikur verið hrein og bein skelfing hvað varðar skemmtanagildi. Hvað segir fólk annars? Er ekki málið að bomba einhverju hressu á twitter bara undir #fotbolti svo ég geti sett eitthvað í þessa textalýsingu?

67 mín Rúrik Andri Þorfinnsson kominn inn sem varamaður fyrir Baldur Bett. Þessi seinni hálfleikur hefur verið gasklefaleiðinlegur.

63 mín Skipting hjá Keflavík. Magnús Sverrir Þorsteinsson fer af velli og inn kemur Magnús Þórir Matthíasson.

62 mín Ingimundur Níels Óskarsson með ágætis skottilraun en boltinn fór rétt framhjá.

60 mín Lögreglan mætt hérna við Fylkisvöll og byrjuð að sekta alla bíla sem lagt hafa ólöglega. Vallarþulur tilkynnti það í hátalarakerfinu og eftir það risu ansi margir áhorfendur úr sætum.

57 mín Allt með kyrrjum kjörum í Árbænum þessa stundina. Keflvíkingar eru þolinmóðir og leyfa Fylkismönnum að vera meira með boltann en Árbæjarliðið er lítið að skapa sér.

Twitter: Helgi Þór Gunnarsson
Marka Hörður mættur í Árbæinn og ánægður með veðrið! #fotbolti Sjá mynd

48 mín Það vantar ekki landsliðsmennina á völlinn. Þar á meðal er Eiður Smári Guðjohnsen sem hefur flúið inn í blaðamannastúkuna þar sem ágangur krakka á vellinum er fullmikill.

46 mín Seinni hálfleikur er hafinn.

45 mín Það er kominn hálfleikur. Staðan jöfn 1-1. Leikurinn verið nokkuð fjörugur og nóg af færum. Vonandi verður það sama uppi á teningnum í seinni hálfleik.

35 mín Andrés Már verið mjög góður hér í fyrri hálfleiknum. Heimamenn mun meira með boltann núna og leikurinn fer að mestu fram á vallarhelmingi Keflavíkur.

31 mín Það er stuð í sólinni í Árbænum. Fylkismenn ógna talsvert meira þessa stundina og gera sig líklega.

24 mín MARK! Fylkismenn hafa jafnað metin og það með rándýru marki sem hlýtur að teljast mark umferðarinnar. Albert Brynjar Ingason gerði vel, tók boltann á kassann og gaf fyrir þar sem Ingimundur klippti boltann í markið. Stórglæsilegt! Skömmu áður hafði Ingimundur sloppið einn í gegn en þá varði Ómar Jóhannsson frá honum.

22 mín Fjör í Árbænum. Guðmundur Steinarsson með góða skottilraun úr aukaspyrnu en Fjalar Þorgeirsson varði með tilþrifum í horn.

20 mín Andrés Már Jóhannesson millimetrum frá því að jafna fyrir Fylki! Átti gott skot umkringdur varnarmönnum sem hafnaði í stönginni. Af stönginni barst boltinn á Albert Brynjar Ingason sem dæmdur var rangstæður.

17 mín Síðustu mínútur verið afskaplega rólegar. Gaman að segja frá því að Guðjón Pétur Lýðsson leikmaður Vals er mættur sumarklæddur á völlinn í kvartbuxum og með sólgleraugu.

8 mín Keflvíkingar misnota dauðafæri. Adam Larsson fékk boltann skyndilega eftir aukaspyrnu og var einn gegn Fjalari sem gerði vel með góðu úthlaupi og varði glæsilega.

3 mín MARK! Draumabyrjun Keflvíkinga sem eru komnir yfir með fyrsta skoti leiksins. Laglegt mark sem Jóhann Birnir Guðmundsson skoraði með góðu skoti við enda vítateigsins eftir undirbúning Hilmars Geirs Eiðssonar.

2 mín Leikurinn er hafinn hér á Fylkisvelli. Dómari í kvöld er málarameistarinn Erlendur Eiríksson.

Twitter: Magnús Sigurbjörnsson
Organ donor með dj shadow á fylkisvelli. Góð byrjun frá Berkinum. #fotbolti #eðall

19:07 ,,Þetta endar með stórmeistarajafntefli 3-3. Það er klárt mál," segir Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV sem er hress í blaðamannastúkunni og spáir mörgum mörkum og fjöri.

18:58 Minnum fólk sem skrifar færslur um leikinn á Twitter að nota hashtagið #fotbolti. Valdar færslur verða birtar hér í textalýsingunni,

Twitter: Tómas Þór Þórðarson
Sjá mynd Nóg að gera í eiginhandaráritunum hjá Guðlaugi Victori. Vinsæll í lautinni. #fotbolti

18:54 Það er aðeins eitt stig sem skilur þessi tvö lið að. Keflavík er í fimmta sæti með átta stig en Fylkir sæti neðar með sjö stig.

18:52 Fylkir tapaði í síðasta leik fyrir FH í 32-liða úrslitum Valitor-bikarsins 3-2 eftir framlengingu. Fjalar Þorgeirsson og Valur Fannar Gíslason eru komnir aftur eftir leikbann og fara báðir í byrjunarliðið.

18:45 Hér að neðan má sjá byrjunarlið kvöldsins.

Fylkir: Fjalar Þorgeirsson (m), Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Valur Fannar Gíslason, Þórir Hannesson, Ingimundur Níels Óskarsson, Andrés Már Jóhannesson, Gylfi Einarsson (f), Albert Brynjar Ingason, Baldur Bett, Tómas Joð Þorsteinsson, Andri Þór Jónsson.

Keflavík: Ómar Jóhannsson (m), Adam Larsson, Haraldur Freyr Guðmundsson (f) , Goran Jovanovski, Einar Orri Einarsson, Jóhann Birnir Guðmundsson, Andri Steinn Birgisson, Guðmundur Steinarsson, Magnús Sverrir Þorsteinsson, Hilmar Geir Eiðsson, Viktor Smári Hafsteinsson.

18:38 Komið þið sæl. Hér í Árbænum hefst leikur Fylkis og Keflavíkur klukkan 19:15. Það er sól og blíða og fjölmargir krakkar þegar mættir á völlinn. Verið er að grilla og gefa svala enda átti Fylkir afmæli um daginn og verið að halda upp á það.
banner
banner
banner