Heimild: Sky
Liverpool ætlar að reyna að krækja í Scott Dann varnarmann Birmingham samkvæmt heimildum Sky Sports.
Félagið hafði áhuga á Phil Jones varnarmanni Blackburn en hann er á leið til Manchester United og því hefur Liverpool ákveðið að reyna að krækja í Dann í staðinn.
Dann var einn besti leikmaður Birmingham á síðasta tímabili en hann gat þó ekki hjálpað liðinu að forðast fall.
Dann hefur einnig verið á óskalista Arsenal en talið er að Birmingham sé til í að selja hann fyrir tíu milljónir punda.
Þessi 24 ára gamli leikmaður hefur verið stuðningsmaður Liverpool alla tíð og talið er að hann sé spenntur fyrir að ganga til liðs félagið.