8-liða úrslit Valitor bikars karla

KR 3 - 2 Keflavík
0-1 Magnús Þórir Matthíasson ('5)
1-1 Baldur Sigurðsson ('8)
2-1 Bjarni Guðjónsson ('41)
3-1 Guðjón Baldvinsson ('58)
3-2 Andri Steinn Birgisson ('65)
0-1 Magnús Þórir Matthíasson ('5)
1-1 Baldur Sigurðsson ('8)
2-1 Bjarni Guðjónsson ('41)
3-1 Guðjón Baldvinsson ('58)
3-2 Andri Steinn Birgisson ('65)
KR vann í kvöld 3-2 sigur á liði Keflavíkur í stórskemmtilegum leik í Vesturbænum þar sem liðin mættust í 8-liða úrslitum Valitor bikarsins. Leikurinn byrjaði með algerri flugeldasýningu þar sem tvö mörk litu dagsins ljós á fyrstu átta mínútunum, en þegar uppi var staðið áttu KR-ingar sigurinn fyllilega skilinn.
Vesturbæingarnir fengu þó enga draumabyrjun í þessari viðureign, því strax á 5. mínútu leiksins kom Magnús Þórir Matthíasson gestunum yfir með skoti úr teignum þar sem vörn KR-inga svaf algerlega á verðinum.
Heimamenn brugðust þó vel við því að einungis þremur mínútum síðar var Baldur Sigurðsson búinn að jafna metin með skalla eftir fyrirgjöf frá Kjartani Henry Finnbogasyni. Þess á milli hafði Ásgeir Örn Ólafsson farið illa með gott færi, Lotto skórnir eitthvað aðeins að klikka í bleytunni.
Eftir þessa bráðskemmtilegu byrjun róaðist leikurinn aðeins niður en var þó samt stórskemmtilegur og opinn. Kjartan Henry átti skot í slána eftir góða sókn KR-inga og þeir voru smám saman að ná undirtökunum í leiknum.
Þeir héldu áfram að sækja og fékk Ásgeir Örn til að mynda annað gott færi sem honum tókst þó ekki að nýta. Markið lá hins vegar í loftinu og Keflvíkinga skorti grimmd fram á við, þó að hvorugt liðanna hafi skort grimmd hvað baráttu varðaði. Tæklingarnar flugu í bleytunni og bæði lið gáfu allt sem þau áttu.
Það voru hins vegar heimamenn sem náðu að fara með forystu inn í leikhlé, þökk sé góðu marki frá Bjarna Guðjónssyni. Guðjón Baldvinsson gaf boltann þá inn í teiginn á fyrirliðann sem skoraði laglega í fyrstu snertingu og kom KR-ingum í 2-1, en þannig var staðan í leikhléi.
Þeir svart-hvítu mættu vel stemmdir inn í seinni hálfleikinn og enn og aftur hefði Ásgeir Örn getað skorað þegar hann náði frábærum skalla eftir hornspyrnu KR-inga, en Ómar í markinu náði naumlega að blaka knettinum í slána og yfir.
Það kom þó ekki að sök því eftir tæpa klukkustund var Guðjón Baldvinsson mættur á fjærstöngina þar sem hann kom knettinum í netið eftir frábæra sendingu frá Kjartani Henry. Útlitið var þarna orðið ansi svart fyrir Keflvíkinga og þurftu þeir að koma strax til baka ef þeir ætluðu sér að fá eitthvað út úr leiknum.
Lærisveinar Willums voru þó hvergi nærri bangnir og einungis sjö mínútum síðar jafnaði Andri Steinn Birgisson metin með flottu skoti eftir varnarmistök KR-inga. Eftir að Keflvíkingum tókst að minnka muninn í 3-2 settu þeir í þriðja gír og voru betri aðilinn í leiknum í dágóða stund.
Þeir fengu tvö mjög góð færi sem þeim tókst ekki að nýta en að sama skapi hefðu KR-ingar getað klárað leikinn þegar vörn gestanna opnaðist aðeins. En hvorugu liðanna tókst þó að bæta við marki sem voru samt ekki slæmar fréttir fyrir KR, verri fréttir fyrir Keflavík. Lokatölur voru 3-2 fyrir KR-ingum sem eru komnir í pottinn fyrir undanúrslitin, en hin liðin sem þangað komust eru öll utan af landi; Þór, ÍBV og BÍ/Bolungavík.
Dregið verður í undanúrslitin á morgun.
Byrjunarlið KR: Hannes Þór Halldórsson (M) - Magnús Már Lúðvíksson, Skúli Jón Friðgeirsson, Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Guðmundur Reynir Gunnarsson - Óskar Örn Hauksson, Bjarni Guðjónsson (F), Baldur Sigurðsson, Ásgeir Örn Ólafsson, Kjartan Henry Finnbogason - Guðjón Baldvinsson (62. Gunnar Örn Jónsson).
Byrjunarlið Keflavíkur: Ómar Jóhannsson (M) - Adam Larsson, Haraldur Freyr Guðmundsson (F), Einar Orri Einarsson, Goran Jovanovski - Guðjón Árni Antoníusson, Jóhann Birnir Guðmundsson, Andri Steinn Birgisson, Hilmar Geir Eiðsson, Magnús Þórir Matthíasson (29. Magnús Sverrir Þorsteinsson) - Guðmundur Steinarsson (58. Arnór Ingvi Traustason).
Gul spjöld: Einar Orri Einarsson (Keflavík), Guðmundur Steinarsson (Keflavík), Guðjón Baldvinsson (KR), Kjartan Henry Finnbogason (KR)
Maður leiksins: Kjartan Henry Finnbogason (KR)
Dómari: Valgeir Valgeirsson
Aðstæður: Rennblautur völlur, rigning á köflum
Leik lokið: Leik KR og Keflavíkur er lokið með 3-2 sigri KR-inga! Þeir eru því komnir í undanúrslitin, en dregið verður á morgun. Liðin í pottinum ásamt KR eru Þór, ÍBV og skástrikið BÍ/Bolungavík.
90. mín: Keflvíkingar fá DAUÐAFÆRI!!! Boltinn berst til Andra Steins inni í teig sem reynir að vippa boltanum yfir Hannes en boltinn fer rétt yfir markið.
90. mín: Venjulegur leiktími er liðinn, uppbótartíminn er að minnsta kosti þrjár mínútur.
89. mín: Áfram halda KR-ingar að sækja, enda vörn Keflvíkinga aðeins búin að opnast. Bjarni Guðjónsson átti rétt í þessu skot yfir markið.
87. mín: KR aftur að öðlast fyrri styrk, þeir ættu að geta haldið þetta út. Rétt í þessu átti Óskar Örn ágætis tilraun úr aukaspyrnu en þetta var þó auðvelt fyrir Ómar að verja.
Magnús Bjarni á Twitter
KR finish them!! #fotbolti
84. mín: Þarna munaði litlu að Gunnar Örn hefði gert út um leikinn! Hann átti frábært hlaup og fékk boltann inn í teig, en Ómar varði skot hans úr þröngu færi.
80. mín: Keflvíkingar eiga góða sókn sem endar með skoti, en Hannes ver. Gestirnir hafa einfaldlega verið miklu betri frá því að þeir skoruðu markið og gætu vel jafnað metin! Allt annað að sjá til Keflvíkinganna núna, þetta verða rosalegar lokamínútur!
76. mín: Þarna skall hurð nærri hælum. Boltinn barst inn í teig KR-inga og lak rétt framhjá markinu. Þarna hefði Arnór Ingvi þurft að ná til knattarins inni í teignum.
74. mín: Kjartan Henry Finnbogason fær fáránlegt gult spjald frá Valgeiri fyrir brot í sókninni. Mjög mjúkt spjald að mínu mati.
72. mín: KR-ingar hársbreidd frá því að bæta við eftir hornspyrnu en Keflvíkingar bjarga fyrir horn. Ég er handviss um að það kemur annað mark í þennan frábæra leik!
70. mín: Keflvíkingar eru aðeins að lifna við eftir markið, það hefur greinilega gefið þeim aukinn kraft! Þeir eru farnir að þjarma aðeins meira að KR-ingunum.
65. mín: MAAAAAAAAAAARK!!!! ANDRI STEINN BIRGISSON OPNAR LEIKINN UPP Á GÁTT MEÐ GLÆSILEGU SKOTI!!! KEFLVÍKINGARNIR FENGU SÍNA FYRSTU ALVÖRU SÓKN Í SEINNI HÁLFLEIK OG ÞAÐ ER EKKI MAGNIÐ SEM SKIPTIR MÁLI, HELDUR GÆÐIN. ANDRI STEINN SKORAÐI MEÐ GLÆSILEGU SKOTI OG STAÐAN 3-2! HVÍLÍKUR LEIKUR!!!
62. mín: KR gera skiptingu. Gunnar Örn Jónsson kemur inn fyrir Guðjón Baldvinsson, sem virtist ekki alveg vera 100 prósent en hefur átt mjög góðan leik samt sem áður. Ég gleymdi líka að minnast á það að Guðmundur Steinarsson fór af velli áðan eftir meiðslin og inn kom Arnór Ingvi Traustason.
58. mín: MAAAAAAAAAAAAAARK!!! EFTIR AÐ HAFA LEGIÐ Í SÓKN SKORA KR-INGARNIR ÞRIÐJA MARKIÐ EN ÞAR VAR Á FERÐ GUÐJÓN BALDVINSSON!! KJARTAN HENRY FINNBOGASON GAF KNÖTTINN INN Í TEIG, ÓMAR NÁÐI EKKI TIL HANS OG GUÐJÓN SKORAÐI Í OPIÐ MARKIÐ!! NÚ ER ÞETTA ERFITT FYRIR KEFLVÍKINGA!!
56. mín: Þarna munaði litlu að KR næði þriðja markinu!! Ásgeir Örn skallaði knöttinn eftir hornspyrnu en Ómar í markinu blakaði glæsilega í slána og yfir.
53. mín: Guðmundur Steinarsson liggur óvígur á vellinum, ég sá ekki alveg hvað gerðist en hann virðist vera sárþjáður.
51. mín: Nei nú fá Lottó skórnir falleinkunn hjá mér. Ásgeir Örn datt úr öðrum skónum, en hélt samt bara áfram að spila og á endanum sótti Guðjón skóna fyrir hann.
50. mín: KR-ingar ekki langt frá því að bæta við núna, Gaui Baldvins spænir sig framhjá vörn Keflvíkinga og gefur út í teiginn en herslumuninn vantaði.
49. mín: Guðjón Baldvinsson fær gult spjald, fyrstur KR-inga.
46. mín: Síðari hálfleikur er hafinn og ég vona það innilega að hann verði jafn fjörugur og sá fyrri!! Keflvíkingarnir byrja með boltann og sækja í átt frá KR-heimilinu.
Hálfleikur: Valgeir Valgeirsson dómari hefur flautað til leikhlés og staðan er verðskuldað 2-1 fyrir KR í hörkuskemmtilegum leik. Bíð spenntur eftir þeim síðari, hið óumflýjanlega rauða spjald kvöldsins á enn eftir að líta dagsins ljós.
45. mín: Keflvíkingar fá aukaspyrnu vel fyrir utan teig en Guðmundur Steinarsson tekur þrumuskot. Það fer beint á Hannes sem getur þó ekki haldið blautum boltanum og á endanum fer hann í hornspyrnu. Keflvíkingar taka hana stutt en sóknin rennur út í sandinn.
Jóhann Skúli Jónsson, stuðningsmaður Vals á Twitter
Kaaamóóón, getur nú ekki verið svona erfitt að elta Bjarna Guðjóns inní teiginn #slowmotion #fotbolti
44. mín: KR-ingarnir sækja stíft og gætu alveg bætt við marki fyrir leikhlé. Þeir sækja mun stífar og Keflvíkingar eru að detta í sama pakka og gegn Val, virka voðalega áttaviltir eitthvað.
41. mín: MAAAAAAAAAAAAAAARK!!!!! KR-INGAR ERU VERÐSKULDAÐ KOMNIR YFIR MEÐ MARK FRÁ BJARNA GUÐJÓNSSYNI!!!! GUÐJÓN BALDVINSSON ÁTTI FRÁBÆRA SENDINGU INN Í TEIG Á BJARNA SEM KLÁRAÐI MARKIÐ EINS OG VANASTI FRAMHERJI VERALDAR!! VIPPAÐI KNETTINUM YFIR ÓMAR OG STAÐAN 2-1 KR Í VIL!!
38. mín: Stuðningsmenn KR eru BRJÁLAÐIR út í Valgeir Valgeirsson dómara frá Akranesi! Guðmundur Steinarsson reif í treyju Skúla Jóns Friðgeirssonar en fékk ekki spjald númer tvö.
37. mín: Guðmundur Steinarsson fær gult spjald fyrir það sem virtist vera hrikalega ruddaleg tveggja fóta tækling á Ásgeir Örn. Líkast til réttur litur á spjaldinu samt, eftir því sem sérfræðingur minn fyrir framan sjónvarpið segir.
36. mín: Hætta skapast í teig KR-inga eftir hornspyrnu Keflvíkinga! Það munaði engu að þeir næðu að skora en hættunni var bægt frá á endanum.
34. mín: Nú verð ég að hrósa Valgeiri fyrir frábæran hagnað. Það var brotið harkalega á Ásgeiri Erni á miðjunni en lét leikinn fljóta og KR komst í ágæta sókn. Reyndar hefur boltinn enn ekki fari út af en Valgeir hlýtur að veifa gulu spjaldi á Einar Orra. Já hann gerir það! Fagmannlega gert! Ég hélt að hann myndi gleyma spjaldinu.
Gísli Þorkelsson á Twitter
Valgeir Valgeirs fær KR - Keflavík þrátt fyrir að vera buinn að gera upp á bak í sumar #3deildardomari #fótbolti
31. mín: Þarna áttu KR-ingar bara að fá víti! Boltinn berst inn í teig þar sem Guðjón Baldvinsson ætlar að skalla knöttinn en varnarmaður Keflvíkinga ýtir hressilega í bakið á honum! Utan á velli hefði verið dæmd aukaspyrna á svona atvik en Valgeir Valgeirsson dómari virtist ekki hafa kjarkinn í að dæma víti.
30. mín: Eru gömlu Lotto skórnir að klikka?? KR-ingar eiga frábæra sókn, boltinn berst til Guðmunds Reynis sem rennir knettinum út í teiginn á Ásgeir Örn sem er í dauðafæri en hann þrumar knettinum framhjá! Þetta er í annað skiptið sem Ásgeir Örn misnotar gott færi!
29. mín: Keflvíkingar gera skiptingu. Magnús Þórir Matthíasson markaskorari fer af velli og inn kemur nafni hans Magnús Sverrir Þorsteinsson. Magnús fyrri var eitthvað meiddur.
28. mín: Þetta var ljótt, þeir Hilmar Geir Eiðsson og Magnús Már Lúðvíksson skella all svakalega saman. Hilmar Geir keyrði inn í Magnús og aukaspyrna dæmd.
27. mín: Þetta er ágætis fótboltaleikur, reyndar ekki mikið að gerast eins og er, menn eiga erfitt með að fóta sig á blautum vellinum en það eru KR-ingarnir sem hafa verið að sækja meira undanfarið.
21. mín: Keflvíkingar í þungri sókn eins og er. Fengu hornspyrnu sem ekkert varð úr en þeir reyna að pressa að marki KR-inganna.
17. mín: KR-ingar eiga fína sókn sem endar með skoti Ásgeirs utan teigs en Ómar ver auðveldlega.
16. mín: Þarna skall hurð nærri hælum!! Óskar Örn Hauksson tók hornspyrnu Baldur skallaði knöttinn til Kjartans Henry sem þrumaði knettinum í slána. Það héldu allir á vellinum að knötturinn væri farinn inn þarna!
13. mín: Keflvíkingar voru hreint út sagt skelfilegir þegar þeir fengu Val í heimsókn fyrir helgi, en þeir eru hins vegar að spila mun betri bolta í kvöld þó að mér þyki KR-ingar vera að taka völdin smám saman.
Valsmenn á Twitter
Afram Keflavik Gud veri med ykkur i kvold. #fotbolti
12. mín: KR völlurinn er rennandi blautur og menn renna til eins og þeir væru David Haye gegn Klitschko.
10. mín: Guðmundur Reynir kemur sér í ágætis skotfæri en þrumar yfir. KR-ingar allir að koma til eftir arfaslaka byrjun.
8. mín: MAAAAAAAAAAARK!!!! BALDUR SIGURÐSSON SKORAR MEÐ SKALLA EFTIR SENDINGU FRÁ KANTINUM FRÁ KJARTANI HENRY FINNBOGASYNI!! ÞETTA ER AÐ BYRJA EINS OG HANDBOLTALEIKUR HÉRNA!!
Tómas Meyer íþróttafréttamaður á Twitter
Jæja nú verður fjör á KR-vellinum fallegt mark ! #fotbolti
7. mín: Ásgeir Örn klúðrar dauðafæri í glæsilegu lottó skónum sínum! Óskar Örn átti frábæra sendingu út á Guðmund Reyni á kantinum, sem renndi knettinum út á Ásgeir sem skaut naumlega framhjá markinu! Svakalega fjörugar upphafsmínútur hér í Vesturbænum!
5. mín: MAAAAAAAAAAARK!!! KEFLVÍKINGAR ERU KOMNIR YFIR!!! MAGNÚS ÞÓRIR MATTHÍASSON SKORAR MEÐ SKOTI ÚR TEIGNUM EFTIR ALGERAN SOFANDAHÁTT Í VÖRN KR-INGA!!! BOLTINN BARST INN Í TEIGINN OG EFTIR EINA MISHEPPNAÐA TILRAUN FÉKK MAGNÚS BOLTANN AFTUR OG SKORAÐI! SKELFILEG VÖRN OG STAÐAN 1-0 KEFLVÍKINGUM Í VIL!
Sólmundur Hólm grínisti á Twitter
WHAT? Ekki troðið á KR-Kef? Sýnir hversu sterkt #bestasaetið er.
1. mín: Leikur KR og Keflavíkur í 8-liða úrslitum Valitor bikarsins er hafinn! Það eru heimamenn úr Vesturbænum sem byrja með knöttinn. Stuðningsmenn KR byrja strax að syngja en það virðast einfaldlega engir stuðningsmenn á vegum Keflavíkur vera hérna.
19.59: Liðin ganga inn á völlinn með lagið "Heyr mína bæn" á fóninum...ég veit ekki alveg hver skoðun mín er á því að þetta lag sé spilað svona fyrir leiki hérna í Vesturbænum, en þeir hafa nú bara rétt á því að gera það sem þeim finnst skemmtilegast. Rauða ljónið mætti með KR-ingum inn á völlinn líkt og það væri hluti af liðinu og tók í hendurnar á öllum leikmönnum Keflavíkur, það er bara skemmtilegt.
Júllinn á Twitter
Hvar eru studningsmenn keflavikur? #gloryhunters #fotbolti
Stefán Stefánsson á Twitter
Biðröð út á götu í Frostaskjólinu. Verulega erlendis eitthvað. #fotbolti #ekkisvonaísveitinni
19.57: Þess má til gamans geta að ef Keflavík fer áfram í undanúrslitin, þá verða ÖLL liðin í undanúrslitunum utan af landi. Nenni ekki að grafa upp hversu langt síðan það gerðist síðast, að ekkert lið frá höfuðborgarsvæðinu væri í undanúrslitum, en það er sjálfsagt ekki stutt síðan!
19.55: Hvernig væri að Twittarar myndu spá í leikinn? Spá ykkar gæti vel birst hérna á síðunni, en þið hafið hins vegar bara 5 mínútur eða svo! Notið hashtaggið #fotbolti!
19.48: Arnar Smárason vallarstjóri hefur unnið hörðum höndum að því að merkja almennilegar hvítar línur á völlinn og ekki annað hægt að segja en að honum hafi gengið glimrandi vel! Ég hef sjaldan séð jafn skýrar línur á fótboltavelli og dómarinn ætti að geta séð hvort að brot eigi sér staðar innan eða utan teigs.
19.45: Það hefur nóg verið að gera hjá báðum þessum liðum undanfarið. Þau hafa bæði verið að spila marga leiki og álagið hefur verið talsvert. Það er spurning hvort að við munum taka eftir því á vellinum.
19.38:Það má segja að KR-ingarnir hafi ekki farið auðveldustu leið sína í átt að úrslitaleiknum á Laugardalsvelli. Þeir hafa einungis keppt við úrvalsdeildarlið, þeir byrjuðu gegn Stjörnunni, náðu síðan fram hefndum gegn bikarmeisturum FH og mæta nú Keflavík í von um síðasta undanúrslitasætið. Keflvíkingar mæta hins vegar í kvöld sínu fyrsta úrvalsdeildarliði í keppninni, en þeir byrjuðu á að slá út Hött frá Egilsstöðum áður en þeir mættu Haukum.
19.30: Góða kvöldið kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu úr leik KR og Keflavíkur í 8-liða úrslitum Valitor bikarsins. BÍ/Bolungavík, ÍBV og Þór Akureyri eru öll komin í undanúrslitin og nú berjast þessi tvö sterku lið um síðasta lausa sætið. Byrjunarliðin má sjá hér fyrir neðan, en bæði lið virðast stilla upp sínum allra sterkustu liðum.
Byrjunarlið KR: Hannes Þór Halldórsson (M) - Magnús Már Lúðvíksson, Skúli Jón Friðgeirsson, Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Guðmundur Reynir Gunnarsson - Óskar Örn Hauksson, Bjarni Guðjónsson (F), Baldur Sigurðsson, Ásgeir Örn Ólafsson, Kjartan Henry Finnbogason - Guðjón Baldvinsson (62. Gunnar Örn Jónsson).
Byrjunarlið Keflavíkur: Ómar Jóhannsson (M) - Adam Larsson, Haraldur Freyr Guðmundsson (F), Einar Orri Einarsson, Goran Jovanovski - Guðjón Árni Antoníusson, Jóhann Birnir Guðmundsson, Andri Steinn Birgisson, Hilmar Geir Eiðsson, Magnús Þórir Matthíasson (29. Magnús Sverrir Þorsteinsson) - Guðmundur Steinarsson (58. Arnór Ingvi Traustason).
Gul spjöld: Einar Orri Einarsson (Keflavík), Guðmundur Steinarsson (Keflavík), Guðjón Baldvinsson (KR), Kjartan Henry Finnbogason (KR)