Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   mið 06. júlí 2011 23:18
Magnús Valur Böðvarsson
Umfjöllun: Keflvíkingar stálu stigunum gegn Fram
Arnór fagnar hér marki sínu...
Arnór fagnar hér marki sínu...
Mynd: Fótbolti.net - Davíð Örn Óskarsson
Ómar Jóhannsson maður leiksins...
Ómar Jóhannsson maður leiksins...
Mynd: Fótbolti.net - Davíð Örn Óskarsson
Mynd: Fótbolti.net - Davíð Örn Óskarsson
Mynd: Fótbolti.net - Davíð Örn Óskarsson
Keflavík 1 - 0 Fram
1-0 Arnór Ingvi Traustason(53')

Fyrri hálfleikurinn var leiðinlegra lagi og einkenndist leikurinn af mikilli miðjubaráttu. Framarar voru þó mikið mun líklegri og fengu þrjú mjög góð færi einir á móti markverðinum en besti maður vallarins Ómar Jóhannsson var að vandanum vaxinn í markinu. Kristinn Ingi og Almarr naga sig eflaust í handabaukin fyrir að nýta ekki færin sín.

Síðari hálfleikurinn var allt annar hjá Keflvíkingum og náðu að skora mark uppúr þurru. Þá kom löng sending innfyrir vörn Framara. Sam Tillen reyndi að hreinsa í burtu en beint á Arnór Traustason sem fékk boltann og lét vaða og skoraði framhjá Ögmundi í markinu. Líklega var miskilningur milli Sam Tillen og Ögmundar sem gerði það að verkum hversu illa Ögmundur var staðsettur.

Eftir þetta bökkuðu Keflvíkingar talsvert og beittu hröðum sóknum. Framarar komust hvorki lönd né strönd og Ómar hirti allt sem á markið kom. Frömurum tókst ekki að jafna og því unnu Keflvíkingar sinn fyrsta sigur síðan 16.mai.

Fátt var um fína drætti hjá Frömurum en hjá Keflavík var Ómar Jóhannsson lang besti maður leiksins en gaman var að fylgjast með Viktori Smára Hafsteinssyni og Bojan Ljubicic. Þá átti Guðmundur Steinarsson ágætis leik.



Leik lokið

90+3 mín Sam Tillen fær gult spjald fyrir brot

89 mín Almarr Ormarsson fær gula spjaldið fyrir glæfralega tæklingu

83 mín Hjálmar Þórarinsson í ágætis færi en skaut beint á ÓMar í markinu.

74 mín Daði Guðmundsson kemur af velli og inná kemur Guðmundur Magnússon. Mínútu seinna kemur Hilmar Geir Eiðsson og Magnús Sverrir Þorsteinsson kemur inná.

65 mín Þorvaldur Örlygsson hefur heyrt í blaðamönnum, en Hjálmar Þórarinsson kemur inn á fyrir Andra Júlíusson sem er búinn að vera algjörlega týndur.

63 mín Framarar virðast vera orðnir pirraður. Tómas Leifsson átti hér glæfralega tæklingu og fékk að launum eitt stykki gult kort hjá flautuleikaranum.

Twitter Tómas MayerNei Eyjólfur bara að hressast hér í Keflavík - komið mark og alles, reyndar out of nowhere en svona er þetta bara. Skemmtun !!

58 mín Markaskorarinn Arnór Ingvi Traustason fer af velli og Jóhann B. Guðmundsson kemur inná.

53 mín Jæja loksins loksins kom mark. Markið kom uppúr þurru. KEflvíkingar áttu langa sendingu sem Sam Tillen ætlaði að negla í burtu. Boltinn fór beint á Arnór Traustason sem negdli boltanum í netið framhjá Ögmundi sem var illa staðsettur í markinu.

46 mín Guðmundur Steinarsson átti fast skot sem fór í útanverða stöngina. Líklega hættulegasta tilraun Keflvíkinga

46 mín Jæja við óskum eftir mörkum til að hleypa upp fjörinu í þessum leik. Seinni hálfleikurinn er hafinn og eru það hvítklæddir Framarar sem sparka knettinum yfir miðjulínuna.

Háflleikur Jæja loksins kominn hálfleikur, nú vonar maður bara að það verði skemmtiatriði í hálfleik til að ná upp einhvejru skemmtanagildi hérna suður með sjó.

43 mín Keflvíkingar með sitt fyrsta færi. guðmundur Steinarsson átti fast skot en Ögmundur greip það.

38 mín Einar Orri Einarsson fékk að líta gula spjaldið. Klaufalegt brot hjá Einari Orra.

35 mín Framarar voru í dauðafæri. Almarr Ormarsson var í kominn einn í gegn eftir góða sendingu frá Andra Júlíussyni en sem fyrr varði Ómar vel í markinu. Þá björguðu Keflvíkingar á línu skalla Hlyns Atla. Framarar mikið betri hér í fyrri hálfleik.

31 mín Arnar Gunnlaugsson virðist hafa orðið fyrir einhvejru hnjaski og fer útaf í staðin fyrir Tómas Leifsson. Ekki góðar fréttir fyrir Fram enda hann búinn að skora öll mörk fram ef undanrskilið mark Kristins Inga Halldórsson í síðustu umferð.

29 mín Gjörsamlega ekkert að gerast í þessum leik þá birtu menn áhorfendatölur strax, 642.

19 mín Við viljum minna lesendur Fótbolta.netá twitter og nota hasttagið #fotbolti í twitterfærslum sínum

11 mín Allt er galopið í vörninni hjá Keflavík aftur var Kristinn Ingi aðgangsharður og var kominn í þokkalegt færi en kaus að renna boltanum út í teiginn þar sem ekki nokkur Framar var staddur og Keflvíkingar náðu að hreinsa.

10 mín Framar voru að fá dauðafæri í þessum töluðu orðum, Viktor Smári Hafsteinsson gerði herfileg mistök í vörn Fram og missti boltann undir fótinn og Kristinn Ingi Halldórsson slapp aleinn í gegn en Ómar Jóhannsson náði að verja skot hans með góðu úthlaupi.

9 mín Ekki hægt að segja að leikurinn byrji með látum og ennþá ekkert markvert búið að gerast.

1.Mín Þorvaldur er búinn að blása í túbuna og leikurinn er hafinn.

19:07 Þorvaldur Árnason mun sjá um flautuspil í dag og munu Einar Sigurðsson og Eðvarð Eðvarðsson sjá um að lyfta flöggum honum til aðstoðar.

19:05 Það er umtalað í blaðamannastúkunni að það er ennþá tvennt sem hefur ekkert breyst í Keflavík. Það er að þó það sé logn í bænum þá er alltaf rok í Keflavík þá virðist sem Reykjanesbrautin sé ennþá jafnlöng og kemur sumum alltaf jafn mikið á óvart

18:57
Góða kvöldið kæru lesendur eftir rúmar fimmtán mínútur hefst leikur Keflavíkur og Fram á Nettóvellinum í Keflavík. Bæði lið hafa átt undir högg að sækja í Pepsi deildinni í sumar en Framarar eru á botninum með aðeins tvö stig á meðan Keflvíkingar eru með átta.

Byrjunarlið liðanna eru komin og eru þau eftirfarandi:

Keflavík Ómar Jóhannsson - Guðjón Árni Antoníusson, Adam Larsson, Haraldur Freyr Guðmundsson, Viktor Smári Hafsteinsson - Hilmar Geir Eiðsson, (Magnús S. Þorsteinsson 75')Bojan Stefán Ljubicic, Einar Orri Einarsson, Arnór Traustason(Jóhann B. Guðmundsson 58') , Andri Steinn Birgisson - Guðmundur Steinarsson

Varamenn Goran Jovanovski, Jóhann B. Guðmundsson, Magnús Sverrir Þorsteinsson, Árni Freyr Ásgeirsson, Magnús Þór Magnússon, Sigurbergur Elíasson, Frans Elvarsson

Fram Ögmundur Kristinsson - Daði Guðmundsson((Guðmundur Magnússon 74'),Hlynur Atli Magnússon, Alan Lowing,, Sam Tillen - Jón Gunnar Eysteinsson, Halldór Hermann Jónsson, Almarr Ormarsson - Andri Júlíusson(Hjálmar Þórarinsson 65'), Arnar Gunnlaugsson(Tómas Leifsson 31'), Kristinn Ingi Halldórsson

Varamenn Hjálmar Þórarinsson, Orri Gunnarsson, Guðmundur Magnússon, Tómas Leifsson, Jón Orri Ólafsson, Stefán Birgir Jóhannesson, Denis Cardaklija
banner
banner
banner