Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
   mán 11. júlí 2011 22:11
Hafliði Breiðfjörð
Umfjöllun: Jóhann Birnir tryggði Keflavík sigur
Keflvíkingar fagna öðru marki sínu.
Keflvíkingar fagna öðru marki sínu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bojan Stefán í leiknum í kvöld.
Bojan Stefán í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Erlendur spjaldar Bojan.
Erlendur spjaldar Bojan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Willum og Gunnar Oddsson á hliðarlínunni.
Willum og Gunnar Oddsson á hliðarlínunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurðru Egill Lárusson í baráttu við Bojan Stefán.
Sigurðru Egill Lárusson í baráttu við Bojan Stefán.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Steinn liggur í valnum.
Andri Steinn liggur í valnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Smári þurfti að skipta um treyju vegna höfuðhöggs sem hann fékk og var kominn í búninginn hjá Helga Sigurðssyni
Halldór Smári þurfti að skipta um treyju vegna höfuðhöggs sem hann fékk og var kominn í búninginn hjá Helga Sigurðssyni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík 2-1 Víkingur
1-0 Guðjón Árni Antoníusson ('21)
2-0 Jóhann Birnir Guðmundsson ('32)
2-1 Viktor Jónsson ('68)

Víkingar komu í heimsókn á Nettó-vellinum í Keflavík í kvöld. Keflvíkingar höfðu yfirhöndina í fyrri hálfleik, en gáfu eftir í þeim senni eftir að hafa leikið einstaklega vel í fyrri hálfleik. Víkingar komust inn í leikinn en náðu ekki að jafna og lokatölur 2-1 fyrir Víking.

Þegar einungis nokkrar mínútur voru liðnar höfðu Keflvíkingar þjarmað að Víkingum. Fyrsta markið leit þó ekki dagsins ljós fyrr en eftir 21. mínútu þegar Guðjón Árni skoraði eftir klafs í teignum. Eftir það var ekki aftur snúið og Keflvíkingar gengu á lagið.

Jóhann Birnir Guðmundsson skoraði svo frábært mark ellefu mínútum síðar. Hann fékk þá boltann, lék á einn Víkingsmann, svo annan nokkrum metrum síðar og hamraði svo boltanum í hornið. Frábært mark og Víkingarnir horfðu niður í grasið og veltu því líklega fyrir sér hvað þeir væru að gera. Staðan 2-0 í hálfleik.

Það var eins og Víkingar vöknuðu af værum blundi í síðari hálfleik. Liðið lék mikið mun betur í síðari hálfleik og strákurinn ungi, Viktor Jónsson, jafnaði metin þegar rúmlega tuttugu mínútur voru eftir. Hann skallaði þá flotta fyrirgjöf Kjartans Dige í netið.

Eftir það sóttu Víkingarnir mikið. Þeir náðu þó ekki að skapa sér neitt almennilegt marktækifæri og lokatölur þá 2-1 sigur Keflavík.

Jóhann Birnir Guðmundsson lék frábærlega. Hann spilaði eins og herforingi inn á miðjunni. Vann vel, skoraði fallegt mark og lagði upp færin á liðsfélagana. Það var mikill blóðtaka þegar hann þurfti að fara af velli tuttugu mínútum fyrir leikslok. Ómar Jóhannsson, markvörður, átti einnig fínan leik sem og Haraldur Freyr í miðri vörninni.

Í liði Víkings var það helst Viktor Jónsson og Kristinn Jóhannes Magnússon sem áttu ágætis leik. Einnig kom Kjartan Dige inn með ágætis krafti í síðari hálfleik.

Byrjunarlið Keflavík:
Ómar Jóhannsson
Guðjón Árni Antoníusson - Adam Larsson - Haraldur Freyr Guðmundsson - Viktor Smári Hafsteinsson
Andri Steinn Birgisson(Magnús Þór Magnússon '24) - Arnór Yngvi Traustason
Hilmar Geir Emilsson - Jóhann Birnir Guðmundsson(Magnús Þórir Matthíasson '71) - Bojan Stefán Ljubicic
Guðmundur Steinarsson(Magnús Sverrir Þorsteinsson '92)

Byrjunarlið Víkings:
Magnús Þormar
Walter Hjaltested - Kristinn Jóhannes Magnússon - Mark Rutgers - Sigurður Egill Lárusson
Halldór Smári Sigurðsson - Denis Abdulahi
Baldur Ingimar Aðalsteinsson(Kjartan Dige Baldursson '43) - Þorvaldur Sveinn Sveinsson - Hörður Sigurjón Bjarnason(Gunnar Helgi Steindórsson '52)
Viktor Jónsson

Maður leiksins: Jóhann B. Guðmundsson - Keflavík.

Áhorfendafjöldi og aðstæður: 793. Ágætis aðstæður, en þó mikill vindur á annað markið.

Dómari: Erlendur Eiríksson - virkilega vel dæmdur leikur.



Leik lokið Leik lokið hérna í Keflavík! Frábær sigur fyrir Keflavík, en Víkingar eru komnir í verulega hættuleg mál voru þeir ekki þar fyrir.

91.mín Hilmar Geir Emilsson í daaaaaauðafæri! Sleppur einn í gegn, en Magnús ver.

89.mín Nú fer hver að vera síðastur í liði Víkinga til að jafna metin.

85.mín Afskaplega lítið að gerast þessa stundina. Leikurinn afar bragðdaufur.

80.mín Flott sókn hjá Víking, en Guðjón Árni kom til bjargar. Víkingarnir pressa á Keflvíkingana þessa stundina.

71.mín Áfall fyrir Keflavík! Besti leikmaður þeirra hingað til fer af velli, Jóhann B. Guðmundsson og í hans stað kemur Magnús Þórir Matthíasson.

68.mín MAAAAAAAAAAAAARK! Viktor Jónsson fékk fyrirgjöf frá Kjartan Dige og skallaði boltann í slá og inn. Fallegt mark og nú er þetta orðið spennandi!

63.mín Viktor Jónsson með ágæta tilraun, en boltinn framhjá.

55.mín Bojan Stefán með frábært skot sem Magnús Þormar varði virkilega vel!

52.mín Furðulegt atvik hérna í Keflavík. Víkingar báðu um skiptingu, enda lág Hörður Sigurjón Bjarnason í jörðinni meiddur. Andri Marteins hélt að hann hefði beðið um skiptingu, en svo var ekki og þurfti Gunnar Helgi Steindórsson að bíða lengur eftir að fá að koma inná.

Hörður fór svo af velli stuttu seinna og Gunnar Helgi kom inná.

49.mín Viktor Jónsson gerði vel í að koma sér í ágætis færi, en Ómar, sem fyrr, í fantaformi og lokaði vel.

46.mín Síðari hálfleikur er hafinn og vonumst við áfram eftir fjörugum leik.

Hálfleikur Það er komin hálfleikur hérna í Keflavík. Staðan 2-0 og þurfa Víkingar virkilega girða sig í brók ætli þeir að hirða einhver stig hérna í Sunny-Kef!

Áhorfendatölur voru einnig að detta í hús. 793 lögðu leið sína á völlinn.

43.mín Baldur Ingimar Aðalsteinsson er farin af velli líklegast meiddur. Kjartan Dige Baldursson kemur inn í hans stað.

41.mín Erlendur sparar ekki spjöldin, líkt og málninguna, en nú var Bojan Stefán Ljubicic að fara í svörtu bókina. Haraldur Freyr Guðmundsson fór líka í bókina stuttu seinna.

Twitter Gísli Árni Gíslason
Allt annad Keflavikurlid med innkomu ungu strakanna i sidustu 2 leikjum #framtidin #fotbolti

35.mín Keflvíkingarnir eru í stórsókn. Víkingarnir ráða ekki við hrikalega spræka Keflvíkinga og kæmi mér ekkert á óvart að Andri Marteins myndi gera breytingu strax í hálfleik.

32.mín MAAAAAAAARK! 2-0 FYRIR KEFLAVÍK! Jóhann Birnir Guðmundsson leikur sér að varnamönnum Víkings og hamrar boltanum í hornið. Frábærlega gert hjá Jóhanni!!

24.mín Í átökunum hérna í markinu áðan skullu þeir Halldór Smári Sigurðsson og Andri Steinn Birgisson saman og þurfti Andri að fara af velli. Í hans stað kom Magnús Þór Magnússon.

21.mín MAAAAAAARK!! Guðjón Árni er búinn að koma Keflvíkingum yfir með marki eftir klafs í teignum. Arnór Yngvi átti þá skot í skeytina og boltinn hrökk til Guðjóns Árna sem skoraði í autt markið.

16.mín Arnór Yngvi með gott skot sem Magnús Þormar ver þó af öryggi. Keflvíkingar virka mun sprækari hér í byrjun leiks, en hafa þó ekki náð að skapa sér nein færi.

11.mín Hörður Sigurjón Bjarnason fær fyrsta gula spjaldið í dag.

10.mín Bojan Stefán með ágætis skot sem endar í höndum Magnúsar í marki Víkings.

4.mín Keflvíkingar afar hressir hérna í byrjun leiks pressa vel á Víkingana sem eiga í smá vandræðum.

1. mín Leikurinn er hafinn og leika Keflvíkingar með vindinn á móti sér í átt að Toyota-höllinni.

19:12 Liðin ganga hér inná völlinn á eftir dómurum leiksins. Vonandi eigum við von á markaveislu!

Við minnum fólk á að tísta um leikinn. Notið hashtagið #fotbolti og þið gætuð komist inní textalýsinguna!

19:05 Styttist í leikinn hér í Keflavík, en áhorfendurnir láta á sér standa. Á að giska um 150 manns mættir hér í Keflavík. Liðin eru farin til búningsherbergja.

18:58 Sunny-Kef er svo sannarlega að standa fyrir sínu. Hér er sól og ágætis veður til knattspyrnuiðkunnar, en þó er strekkings vindur á annað markið.

18:50 Dómari í dag er málarameistarinn Erlendur Eiríksson. Honum til aðstoðar eru þeir Frosti Viðar Gunnarsson og Leiknir Ágústsson.

18:35 Byrjunarliðin eru dottin í hús. Bæði lið gera eina breytingu frá síðasta deildarleik. Jóhann Birnir Guðmundsson kemur inn fyrir Einar Orra Einarsson í liði heimamanna sem er í banni, en hjá gestunum kemur Þorvaldur Sveinn Sveinsson inn fyrir Martein Briem, sem er meiddur.

Byrjunarlið Keflavík:
Ómar Jóhannsson
Guðjón Árni Antoníusson - Adam Larsson - Haraldur Freyr Guðmundsson - Viktor Smári Hafsteinsson
Andri Steinn Birgisson - Arnór Yngvi Traustason
Hilmar Geir Emilsson - Jóhann Birnir Guðmundsson - Bojan Stefán Ljubicic
Guðmundur Steinarsson

Byrjunarlið Víkings:
Magnús Þormar
Walter Hjaltested - Kristinn Jóhannes Magnússon - Mark Rutgers - Sigurður Egill Lárusson
Halldór Smári Sigurðsson - Denis Abdulahi
Baldur Ingimar Aðalsteinsson - Þorvaldur Sveinn Sveinsson - Hörður Sigurjón Bjarnason
Viktor Jónsson

18:30 Komiði sæl og blessuð og verið velkomin í beina textalýsingu frá Sparisjóðsvellinum í Keflavík! Hér í dag munu mætast Keflavík og Víkingur, en bæði lið þurfa virkilega mikið á stigunum að halda. Meira síðar.

Við minnum Twitter-notendur á að nota hashtagið #fotbolti ef þeir tísta um leikinn. Valin tíst verða birt hér í textalýsingunni.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
banner