Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   lau 16. júlí 2011 19:04
Fótbolti.net
Umfjöllun: Fjarðabyggð fór létt með Völsung
Jóhann Ragnar Benediktsson í leiknum. Haukur Ingvar þjálfari fylgist með.
Jóhann Ragnar Benediktsson í leiknum. Haukur Ingvar þjálfari fylgist með.
Mynd: Kristín Þorgeirsdóttir
Fjarðabyggð 3 - 0 Völsungur
1-0 Jóhann Ragnar Benediktsson ('24)
2-0 Hákon Þór Sófusson ('33)
3-0 Fannar Árnason ('39)

Það var einbeitt lið Fjarðabyggðar sem mætti til leiks gegn Völsungi á Eskifjarðarvelli í dag. Greinilegt var að leikmenn liðsins voru staðráðnir í að kvitta fyrir 3-0 tapið í fyrri umferðinni á Húsavík.

Leikurinn byrjaði fjörlega og framan af voru leikmenn beggja liða að þreifa fyrir sér en á 24. mínútu fékk Mirnes Smajlovic boltann upp hægra megin og með tvo menn í sér lagði hann boltann út til vinstri á Jóhann Ragnar Benediktsson sem þrumaði boltanum í nærhornið frá vítateigslínu og kom Fjarðabyggð í 1-0.

Á 33. mínútu sótti Fjarðabyggð upp vinstra megin og fyrirgjöfin rataði á Hákon Þór Sófusson sem lagði boltann snyrtilega í fjærhornið og kom Fjarðabyggð í 2-0.

Aðeins 6 mínútum síðar kom þriðja mark Fjarðabyggðar. Jóhann Ragnar Benediktsson átti þá langt innkast beint á kollinn á Fannari Árnasyni sem skallaði boltann í hornið á Völsungsmarkinu og Fjarðabyggð með örugga 3-0 forystu í hálfleik.

Seinni hálfleikur var jafnari og áttu bæði lið nokkra góða spretti en engin mörk komu þrátt fyrir góð færi. Sérstaklega var Fjarðabyggð nálægt því að bæta við mörkum í tvígang en það tókst ekki.

Völsungar börðust allan leikinn en áttu við ofurefli að etja og var til fyrirmyndar að sjá til Fjarðabyggðarliðsins í dag þar sem barátta, samvinna og samheldni skilaði góðum sigri.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner