Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   fim 04. ágúst 2011 10:00
Mist Rúnarsdóttir
Best í 11. umferð: Stefnum öll að sama markmiðinu
Kvenaboltinn
Þá er komið að því að tilkynna um val á besta leikmanni 11. umferðar Pepsi-deildar kvenna á Fótbolta.net. Það er engin önnur en Ashley Bares, framherji Stjörnunnar, sem fær heiðurinn að þessu sinni en hún skoraði fjögur mörk í 4-2 sigri Stjörnunnar á Þrótti.

Þetta er í annað skipti sem að Ashley er valin leikmaður umferðarinnar á Fótbolta.net en hún var einnig valin best í 2. umferð mótsins, eftir fyrri viðureign Stjörnunnar og Þróttar.

„Við mættum ekki alveg tilbúnar til leiks og þær gerðu okkur erfitt fyrir með því að skora snemma leiks. Eftir að við fórum að spila eins og við getum fannst mér þetta verða betra en við þurfum að fara að byrja leikina á réttum tíma. En í heildina var gott að spila saman, skora nokkur mörk og síðast en ekki síst vinna leikinn,“ sagði Ashley um leikinn.

Ashley fór fyrir liði sínu í leiknum og skoraði fjögur mörk. Hún segist hafa verið ánægð með frammistöðu sína og mörkin.

„Auðvitað er alltaf gaman að skora mörk. Sérstaklega þar sem við lentum undir og þurftum virkilega á mörkum að halda. Ég vil gera eins og ég get til að hjálpa liðinu mínu. Við bjuggum okkur til þónokkur færi sem við náðum ekki að klára. Til dæmis bjargaði varnarmaður Þróttar frábærlega á marklínu en jú, ég var ánægð með mörkin en veit að ég þarf alltaf að leggja hart að mér fyrir næsta leik."

Eins og áður kom fram er þetta í annað sinn sem að Ashley er valin besti leikmaður umferðarinnar á Fótbolta.net og í bæði skiptin hefur hún verið valin eftir leik gegn Þrótti. Aðspurð segir hún þó ekki auðveldara að skora gegn Þrótti en öðrum liðum.

„Ég held að það sé ekkert öðruvísi að mæta þeim heldur en öðrum liðum. Að skora mörk er bara eitthvað sem gerist þegar liðið nær vel saman sóknarlega. Við gerðum vel í að finna hverja aðra og skapa færi. Mér fannst það ganga vel á móti Þrótti. Ég reyndi að aðlagast varnarleik þeirra með ákveðnum hreyfingum og hlaupum svo að liðið mitt gæti unnið með mér og fundið sendingarleiðir.“

Ashley er markahæst í deildinni með 16 mörk eftir 11 leiki. Hver skyldi lykillinn á bak við slíkan árangur vera?

„Satt að segja þá lít ég ekki þannig á þetta og er lítið að velta mér upp úr tölfræðinni. Ég einbeiti mér bara að leiknum. Það er alltaf næsti leikur sem skiptir mestu máli og ég vil gera það sem ég get til að hjálpa liðinu. Það hjálpar auðvitað að skora mörk þegar þú ert sóknarmaður en aðalmálið er að liðið nái sigri í sameiningu."

Stjarnan tekur á móti Val í kvöld í stórleik sumarsins. Við spurðum Ashley út í leikinn og undirbúninginn en þjálfari hennar, Þorlákur Árnason, hefur verið erlendis með U17 ára landsliði Íslands.

„Við söknuðum klárlega þjálfarans og tveggja liðsfélaga okkar sem voru einnig í burtu með landsliðinu, en ég veit að við verðum öll klár í slaginn fyrir leikinn. Aðstoðarþjálfarinn okkar stóð sig mjög vel í síðustu viku, var með góðar æfingar og undirbúning fyrir leikinn. Liðið okkar er vinnusamt og við erum öll að stefna að sama markmiðinu. Við leggjum mikið á okkur og ætlumst til hins sama frá hvoru öðru.

„Valsliðið er sterkt og miðað við stöðuna í deildinni er frábær leikur í uppsiglingu. Ég hlakka mikið til leiksins eins og liðsfélagar mínir. Erfiðir leikir eru alltaf skemmtilegastir og við erum spenntar.“

„Þetta eru næsti leikurinn okkar og fyrir mér er það alltaf mikilvægasti leikurinn. Þetta verður frábær leikur, bæði fyrir leikmenn og áhorfendur, og við ætlum að reyna að ná í þrjú stig eins og í öllum öðrum leikjum sem við spilum.“


Þannig að jafntefli er ekki viðunandi?

„Mér finnst aldrei gaman að gera jafntefli. Í Bandaríkjunum segjum við stundum að „jafntefli er eins og að kyssa systur sína“, vegna þess að það er ekkert sérstakt. Ég segi því nei, ég yrði ekki sátt við jafntefli og vil spila til sigurs eins og í öðrum leikjum. Ef við berum saman stigafjölda liðanna þá yrði jafntefli alls ekki slæmt fyrir okkur, en það er aldrei gaman að gera jafntefli!“, sagði Ashley Bares, besti leikmaður 11. umferðar að lokum í samtali við Fótbolta.net.
Slapp
banner
banner
banner