Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 06. ágúst 2011 14:52
Fótbolti.net
Umfjöllun: Dalvík/Reynir byrjaði Fiskidaga á sigri
Klemenz Bjarki Gunnarsson skrifar frá Dalvík
Leikmenn Dalvíkur/Reynis fagna marki.
Leikmenn Dalvíkur/Reynis fagna marki.
Mynd: Bjarni Gunnarsson
Milos Glogovac skoraði fyrir KF.
Milos Glogovac skoraði fyrir KF.
Mynd: Fótbolti.net - Þorvaldur Þorsteinsson
Dalvík/Reynir 2 - 1 KF
1-0 Bessi Víðisson
1-1 Milos Glogovac
2-1 Bessi Víðisson

Það var eftirvænting í loftinu þegar flautað var til leiks í nágrannaslag Dalvíkur/Reynis og KF á fimmtudag. Fiskidagurinn mikli framundan og fjöldi manns í bænum. Að auki var frítt inn á völlinn í boði Vodafone og því þétt setinn bekkurinn og brekkurnar á Dalvíkurvelli. Leikurinn gat ekki byrjað betur fyrir heimamenn því að eftir aðeins 35 sekúndur hirti Bessi Víðisson boltann af varnarmanni KF og skoraði laglegt mark.

Þetta kveikti í heimamönnum sem voru sprækari aðilinn framan af. Smátt og smátt unnu KF sig inn í leikinn og fengu hornspyrnu eftir 22 mínútur. Hornspyrnan var vel tekin upp í sterkan norðanvindinn og sveif í boga inn á markteig heimamanna þar sem Milos Glogovac kom boltanum í netið og staðan því orðin 1-1.

Leikurinn var fremur jafn það sem eftir lifði hálfleiks, KF lék undan sterkum vindi en náði ekki að skapa sér mörg afgerandi færi en náðu á stundum pressu á vörn heimamanna. Það var hins vegar Dalvík/Reynir sem átti besta færið þegar Kristinn Þór Björnsson átti gott skot utan teigs undir lok hálfleiksins, markvörður KF, Halldór Ingvar Guðmundsson, varði vel en hélt ekki boltanum og mátti minnstu muna að sóknarmenn heimamanna kæmust í boltann en KF hreinsaði frá á síðustu stundu.

Síðari hálfleikur var hins vegar að mestu eign heimamanna en þá léku þeir undan vindi og héldu uppi sterkri pressu á vörn KF sem gekk illa að koma boltanum frá. Dalvík/Reyni gekk þó illa að opna vörn heimamanna en Kristinn Þór skoraði mark sem var dæmt af vegna rangstöðu sem mörgum í stúkunni fannst vafasöm. Eftir hornpspyrnu endaði boltinn í stöng KF-marksins, Markús Jónasson fylgdi vel á eftir og héldu margir að hann hefði loksins skorað en þá fór boltinn í hliðarnetið. Markús skoraði síðan mark sem var réttilega dæmt af vegna rangstöðu.

Oft þegar lið liggja svona í sókn þá geta skyndisóknir andstæðinga orðið skeinuhættar og á 80. mínútu áttu KF-menn eina slíka sem endaði með því að boltinn small í stöng heimamanna og fór þá um marga í stúkunni. Það var síðan á 88. mínútu sem að ísinn var brotinn. Eftir pressu á varnarmenn KF þá hrökk boltinn til varamannsins Hilmars Daníelssonar sem átti laglega stungusendingu á Bessa Víðisson sem kom honum snyrtilega fram hjá markverði KF. Bessi fékk síðan krampa í aftanvert lærið og þurfti að fara af velli undir áköfu lófaklappi heimamanna.

Dómari leiksins bætti heilum 5 mínútum við vegna tafa og pressuðu KF þá ákaft en vörn heimamanna hélt og brutust út mikil fagnaðarlæti þegar lokaflautið gall. Fimmti sigurleikur Dalvíkur/Reynis í röð og fiskidagsgleðinni formlega startað.
Slapp
banner
banner