Amorim gæti stigið frá borði ef slæmt gengi Man Utd heldur áfram - Bayern ætlar ekki að bjóða Sane hærri samning
Ali líður vel í Víkinni: Vona að ég get gefið til baka
Heimir fann lausn: Ekki gefa boltann á slæmum stöðum
Sölvi um mörkin: Þetta var góð pressa
Fékk svarið sem hann vildi fá - „Menn setjist á bekkinn og hugsi sinn gang"
Upplifði ógnvekjandi tíma í vetur - „Mjög þakklátur miðað við hvar maður var"
Æsingur eftir leik - „Illa að okkur vegið að saka okkur um að tefja"
Grímsi ósáttur að hafa verið bekkjaður - „Fáránlegt"
Ívar Ingimars: Frábært að fá þessa reynslu og máta sig við topplið í Bestu
Systurnar skoruðu báðar: Hún lætur mann stundum heyra það
Óskar Hrafn: Þegar tveir strengir slitna tekur tíma að ná aftur takti við hljómsveitina
Rúnar vildi fá víti: Dómarinn á að sjá þetta betur en ég
Jökull: Enginn fór og henti kuðung í sturtubotninn
Þorri Mar þakklátur Stjörnunni - „Sýnir að það sé ekkert okkar á milli"
Láki: Það var reiðarslag fyrir okkur
Valor fékk að velja undir lok gluggans: Gott að sjá vini mína aftur
Jón Þór: Töpum á öllum sviðum leiksins og ég á enga útskýringu á því
Sá yngsti í sögunni: Fór beint heim, hringdi í alla og lét þau vita
Birkir mjög sáttur á Hlíðarenda: Eignuðumst barn og konan vildi koma suður
Túfa: Sást í augunum á mönnum að þeir vildu svara fyrir sig
Lúkas Logi: Þetta er ekkert flókið
   mán 05. september 2011 15:46
Elvar Geir Magnússon
Eggert í Leifsstöð: Keane verður ekki á landsleiknum
Geir Þorsteinsson og Eggert Magnússon.
Geir Þorsteinsson og Eggert Magnússon.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölmiðlamenn biðu í Leifsstöð í dag eftir því hvort Roy Keane myndi mæta til landsins. Enginn Keane var sjáanlegur en Eggert Magnússon lenti þó á landinu. Fram hefur komið í fjölmiðlum að Eggert hefur verið milliliður milli KSÍ og Keane.

Í sjónvarpinu hér að ofan má sjá viðtal við Eggert.

Eggert segir að ekki hafi verið rætt að Roy Keane taki við landsliðinu. „Það hefur ekki verið rætt við hann um það að hann taki að sér þetta starf. Ég hef ekki átt í neinum viðræðum við hann um annað en hann er gamall félagi minn," segir Eggert.

Hann segist hafa boðið Keane og eiginkonu hans í heimsókn til landsins og hugmyndin hafi verið að horfa á leiki U21 og A-landsliðsins á morgun. Annríki hjá Keane hafi svo hamlað því.

Eggert segir að Keane verði því ekki á landsleiknum á morgun.

„Ég hef ekkert nema gott um Roy Keane að segja. Hann hefur geysilega gott fordæmi fyrir aðra. Hann þekkir þetta umhverfi út og inn og þess utan er hann mjög stabíll fjölskyldumaður."

banner
banner
banner