Jón Daði Böðvarsson (Selfoss) er leikmaður 20. umferðar 1. deildar
Jón Daði Böðvarsson hefur farið á kostum með Selfyssingum í 1. deildinni í sumar. Hann átti stórleik á laugardaginn þegar liðið vann ævintýralegan 4-3 sigur á BÍ/Bolungarvík og er nú bara hænuskrefi frá Pepsi-deildinni.
„Mér fannst við vera betri aðilinn allan tímann en þeir nýttu færin sín ótrúlega vel. Úr því varð þessi hörkuleikur. Við hættum aldrei og sýndum gríðarlegan karakter og því sem fór sem fór," segir Jón Daði sem hefur verið valinn leikmaður 20. umferðar 1. deildar.
„Staðan lítur ótrúlega vel út en við vitum alveg að við erum ekki komnir upp þó þetta sé eiginlega að mestu komið. Við þurfum að taka þessa tvo síðustu leiki af alvöru. Mér finnst átta marka munur ekkert gríðarlega mikill persónulega og þetta Haukalið getur alveg náð því."
Spurður að því hvort eitthvað lið sé betra í deildinni en Selfoss segir Jón Daði að taflan ljúgi ekki. „Skaginn er í fyrsta sæti og þá hljóta þeir að vera betri en við. Þeir náðu betri stöðugleika í upphafi sumars," segir Jón Daði.
Hann veit ekki enn hvort áhugi sé á honum erlendis frá. „Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá veit ég sjálfur ekki neitt. Eftir tímabilið fæ ég að vita hvað er í gangi. Ég hef ekki heyrt neitt eins og er."
Jón Daði hlaut ekki náð fyrir augum þjálfara U21-landsliðsins fyrir þau verkefni sem nú eru í gangi. Mörgum þykir að Jón Daði eigi klárlega heima í hópnum.
„Ég var alveg svekktur, það er eitt af markmiðum mínum að komast í þennan hóp. Þetta sýnir bara hversu gríðarlega sterkur þessi hópur er og maður þarf að leggja enn harðar að sér til að ná þessum markmiðum. Ég set bara stefnuna á að komast í næsta hóp," segir Jón Daði Böðvarsson.
Sjá einnig:
Leikmaður 19. umferðar - Dan Howell (KA)
Leikmaður 18. umferðar - Artjoms Goncars (Víkingur Ó.)
Leikmaður 17 umferðar Edin Beslija (Víkingur Ó.)
Leikmaður 16. umferðar - Andri Björn Sigurðsson (Grótta)
Leikmaður 15. umferðar - Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 14. umferðar - Þórir Guðjónsson (Leiknir)
Leikmaður 13. umferðar - Arnar Már Guðjónsson (ÍA)
Leikmaður 12. umferðar - Pape Mamadou Faye (Leiknir)
Leikmaður 11. umferðar - Mark Doninger (ÍA)
Leikmaður 10. umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 9. umferðar - Babacar Sarr (Selfoss)
Leikmaður 8. umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 7. umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Leikmaður 6. umferðar - Jón Daði Böðvarsson (Selfoss)
Leikmaður 5. umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 4. umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 3. umferðar - Elvar Páll Sigurðsson (KA)
Leikmaður 2. umferðar - Tomi Ameobi (BÍ/Bolungarvík)
Leikmaður 1. umferðar - Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)





