Hallgrímur Jónasson spilaði í kvöld sinn fyrsta leik í undankeppni þegar Ísland lagði Kýpur, 1-0, á Laugardalsvelli í kvöld.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 0 Kýpur
Hallgrímur var að vonum ánægður með sína frammistöðu í kvöld en hann átti góðan leik í vörninni.
,,Það er mjög gaman loksins að ná sigurleik og þó við höfum kannski ekki spilað gallalausan leik þá er ég mjög ánægður," sagði Hallgrímur við Fótbolta.net eftir leik.
Íslenska liðið var á tímum ógnandi í sóknaraðgerðum sínum en jákvæðast er kannski að liði hélt hreinu.
,,Það er mikilvægt, mjög skemmtilegt fyrir varnarmenn að við höldum hreinu, kannski hefðum við getað skapað aðeins meira fram á við eða þorað að halda boltanum meira fram á við. En við erum ánægðir með sigurinn."
Nánar er rætt við Hallgrím í sjónvarpinu hér að ofan.






















