Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   mán 17. október 2011 12:30
Magnús Már Einarsson
Valur og fleiri félög sýna Guðmundi Steinarssyni áhuga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nokkur félög hafa áhuga á Guðmundi Steinarssyni leikmanni Keflavíkur en samningur hans við félagið rann út i gær.

,,Ég veit af áhuga nokkurra liða. Það eru margir kostir í boði og maður þarf að setjast niður og sjá hvað er skemmtilegt að gera," sagði Guðmundur við Fótbolta.net í dag.

Guðmundur hefur meðal annars verið orðaður við Val þar sem fyrrum þjálfari hans Kristján Guðmundsson er við stjórnvölinn.

,,Ég er búinn að heyra aðeins af áhuga þeirra en það er ekki búið að fara mjög langt. Ég er búinn að vera erlendis og þetta opnaði bara í gær," sagði Guðmundur.

Þessi 32 ára gamli framherji hefur leikið með Keflavík lengst af á sínum ferli en hann er leikja og markahæsti leikmaður félagsins frá upphafi.
Slapp
banner
banner