Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   mán 17. október 2011 14:22
Elvar Geir Magnússon
Brynjar Kristmundsson áfram í herbúðum Vals
Guðmundur Steinn lánaður aftur til Ólafsvíkinga
Brynjar í leik með Ólafsvíkingum gegn FH.
Brynjar í leik með Ólafsvíkingum gegn FH.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Bakvörðurinn Brynjar Kristmundsson er að ganga alfarið í raðir Vals en hann lék með liðinu á lánssamningi frá Víkingi Ólafsvík seinni hluta sumars. Hann spilaði sjö leiki í Pepsi-deildinni.

Brynjar mun skrifa undir þriggja ára samning við Hlíðarendafélagið.

Valsmenn eru að ganga frá samningum við Ólafsvíkinga en innifalið í þeim samningi er að sóknarmaðurinn Guðmundur Steinn Hafsteinsson muni vera lánaður aftur til Ólafsvíkur næsta sumar.

Guðmundur skoraði sjö mörk í 21 leik fyrir Víking Ólafsvík í 1. deildinni í sumar og ríkti mikil ánægja með hans frammistöðu.

Brynjar er 19 ára og hefur síðustu ár verið í lykilhlutverki með Ólafsvíkurliðinu.
Slapp
banner
banner