Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   mán 14. nóvember 2011 09:00
Magnús Már Einarsson
Hannes Þ. Sigurðsson: Eto'o mölvaði hurð í klefanum
,,Lífið er yndislegt í Rússlandi. Hér er gott fólk og hér er gott að vera, ég get ekki kvartað yfir neinu," sagði Hannes Þ. Sigurðsson í viðtali í útvarsþættinum Fótbolti.net á X-inu 97,7 um helgina. Hannes gekk í ágúst til liðs við rússneska félagið Spartak Nalchik eftir að hafa leikið með FH fyrri hluta árs.

,,Ég hef verið að koma mér í sama form og hinir strákarnir og aðlagast þessum bolta. Þetta er svolítið öðruvísi en í Skandinavíu en þetta er mjög skemmtilegt og ég er mjög ánægður með að hafa tekið þessa ákvörðun að koma hingað."

,,Deildin er ótrúlega sterk og það er gaman að spila í henni. Þetta er skemmtilegur bolti og það er mikið af stórum liðum og sterkum leikmönnum sem maður fær að mæta. Þetta er algjört ævintýri og það er frábært eftir strögglið síðustu ár að fá að spila á þessu leveli á móti svona liðum og leikmönnum."


Hannes og félagar eru í næstneðsta sæti deildarinnar eftir 30 umferðir. Verið er að breyta fyrirkomulaginu í Rússlandi en Spartak Nalchik fer nú ásamt átta neðstu liðum deildarinnar í sérstaka deild sem hefst um næstu helgi.

,,Þetta er búið að vera bölvað ströggl en við erum með hörkulið og stefnum á að klifra upp þessa töflu þegar mótið heldur áfram."

,,Við höfum 14 leiki til að breyta þessu og það er ágætt þvi við erum á ágætis róli. Þessi hópur af leikmönnum sem við erum með er það góður að hann á ekki að falla. Við erum með töluvert af landsliðsmönnum og reyndum mönnum. Við ættum að geta slípað þetta saman og komið sterkari inn."


Peningarnir í rússneska boltanum eru alltaf að vera meiri og Anzhi Makhachkala er á meðal þeirra félaga sem hefur eytt háum fjárhæðum í leikmenn. Þar á meðal er Samuel Eto'o sem kom til Anzhi í sumar og spilaði á móti Spartak Nalchik í síðasta mánuði.

,,Hann var vægast sagt allt í lagi (í leiknum). Hann var rosalegur en við náðum góðu jafntefli við þá. Það fór svolítið í skapið á honum því hann mölvaði hurð inni í búningsklefa og það var allt brjálað eftir leikinn. Maður skilur að hann hafi ekki viljað koma hingað til okkar og láta sér nægja eitt stig. Það var sterkt stig, þetta var derby-leikur og mikið stolt undir."

Hannes gerði samning til áramóta við Spartak Nalchik en góður möguleiki er á að hann verði lengur hjá félaginu.

,,Það er alveg eins líklegt að ég verði hérna áfram. Það er búið að græja alla pappírsvinnu fyrir næsta ár. Ég var að fara út í óvissuna með því að koma hingað, ég vissi að ég myndi vilja spila í þessari deild en ég vissi ekki hvort ég myndi þrífast í þessu umhverfi. Það hefur gengið mjög vel og ég kann mjög vel við mig. Ef ég fæ tækifæri til að vera áfram þá skoða ég það mjög vel, hvort sem það verður hér eða annars staðar í Rússandi," sagði Hannes meðal annars í viðtalinu.

Sjá einnig:
Smelltu hér til að hlusta á þáttinn