Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 17. desember 2011 15:30
Sebastían Sævarsson Meyer
Martin Jol: Suarez er sannur leiðtogi
Mynd: Getty Images
Martin Jol, knattspyrnustjóri Fulham, yrði hissa á því ef sannað verður að Luis Suarez hafi sýnt Patrice Evra kynþáttafordóma.

Atvikið á að hafa átt sér stað í leik Liverpool og Manchester United á Anfield 15. október síðastliðinn.

Málaferli í málinu hófust á miðvikudaginn en ljóst er að niðurstaða er ekki væntanleg fyrr en á þriðjudaginn í fyrsta lagi. Luis Suarez lék undir stjórn Marin Jol hjá Ajax á árum áður.

,,Ef þetta er satt þá kemur mér það mjög á óvart. Hjá Ajax spilaði hann með leikmönnum frá öllum heiminum,” sagði Jol.

,,Hann var fyrirliði minn og verkefni hans var að láta leikmenn líða vel. Hann var sannur leiðtogi.”

,,Sannur leiðtogi myndi aldrei gera eitthvað svona.”
banner
banner
banner