Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 20. desember 2011 21:17
Magnús Már Einarsson
Heimild: STV 
Eggert Gunnþór á leið til Wolves
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður Hearts, er á leið til Wolves í ensku úrvalsdeildinni.

Samkvæmt frétt á vef STV hefur Hearts samþykkt tilboð frá Wolves í leikmanninn.

Eggert var síðan sjálfur í viðræðum við Wolves í dag og allt bendir til þess að hann gangi til liðs við Úlfana þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.

Eggert, sem er 23 ára gamall, ólst upp hjá Fjarðabyggð áður en hann gekk til liðs við Hearts árið 2005.

Síðan þá hefur Eggert skorað níu mörk í 153 deildarleikjum með Hearts en hann hefur leikið allar stöður í vörninni hjá liðinu sem og á miðjunni.

Hearts á í miklum fjárhagsvandræðum og félagið mun njóta góðs af því að fá pening í kassann fyrir Eggert.
banner
banner
banner