Norðmaður mun spila með liðinu á laugardag
Danski varnarmaðurinn Nikolaj Pedersen sem spilaði með Stjörnunni í fyrra er líklega á leið í raðir Selfyssinga. Hann er væntanlegur til landsins og mun æfa og spila með Selfossi á næstu dögum.
Hann mun leika með Selfossi gegn ÍBV í Fótbolta.net mótinu á laugardaginn.
Hann mun leika með Selfossi gegn ÍBV í Fótbolta.net mótinu á laugardaginn.
Í þessum leik mun Robert Sandnes, 22 ára norskur leikmaður hjá Álasundi, einnig spila með Selfyssingum. Sandnes getur bæði spilað í vörn og á miðju en þetta staðfesti Logi Ólafsson, þjálfari Selfyssinga, við Fótbolta.net.
Selfoss vann sér inn sæti í Pepsi-deild karla á síðustu leiktíð.



