Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 26. janúar 2012 15:30
Elvar Geir Magnússon
Fótbolta.net mótið: Ræðst á laugardag hverjir fara í úrslit
Riðlakeppni Fótbolta.net mótsins lýkur á laugardaginn og þá ræðst hvaða lið munu mætast í úrslitaleiknum. Mótinu er skipt upp í tvo riðla og munu sigurvegarar hvors riðils mætast í úrslitum.

Af átta liðum mótsins er ljóst að Selfoss og Keflavík eiga ekki möguleika á sæti í úrslitaleiknum en vonin er til staðar hjá öðrum liðum. Einnig verður spilað um önnur sæti á mótinu.

A-riðill:
1. ÍA (4-1) - 4 stig
2. Breiðablik (2-1) - 4 stig
3. FH (6-4) - 3 stig
4. Keflavík (1-7) - 0 stig

Skagamenn og Blikar eru á toppi A-riðils með fjögur stig. Ef liðin enda jöfn að stigum mun markatala ráða úrslitum. Markatala ÍA er tveimur mörkum betri. FH getur einnig komist í úrslitaleikinn en þá þarf liðið að vinna Blika og treysta á að úrslitin í leik ÍA og Keflavíkur verði hagstæð.

Laugardagur:
11:00 Breiðablik - FH (Fífan)
12:00 ÍA - Keflavík (Akraneshöllin)

B-riðill:
1. Stjarnan (5-3) - 4 stig
2. ÍBV (5-5) - 3 stig
3. Grindavík (3-4) - 3 stig
4. Selfoss (5-6) - 1 stig

Í B-riðli er ljóst að Stjarnan fer í úrslitaleikinn ef liðið vinnur ÍBV. Eyjamenn geta komist í úrslitin með sigri en þurfa þá að vinna og treysta á að Grindavík vinni Selfoss ekki með þeim markamun að þeir komist upp fyrir.

Laugardagur:
11:30 Selfoss - Grindavík (Kórinn)
13:15 Stjarnan - ÍBV (Kórinn)
Slapp
banner