Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   fim 26. janúar 2012 07:30
Alexander Freyr Tamimi
Bellamy: Gæti ekki verið betri úrslitaleikur fyrir mig
Craig Bellamy var hetja Liverpool í gærkvöldi þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Manchester City í undanúrslitum deildabikarsins og tryggði sér farseðilinn á Wembley. Þeir unnu 3-2 samtals og mæta Cardiff í úrslitunum, en Bellamy jafnaði metin fyrir heimamenn á Anfield.

Walesverjinn mætir því liði frá sínu heimalandi í úrslitunum og var hann ánægður með að vera kominn alla leið þangað.

,,Í gærkvöldi sá ég Cardiff komast áfram og ég var ánægður fyrir þeirra hönd," sagði Bellamy.

,,Þetta gæti ekki verið betri úrslitaleikur fyrir mig. Það er fyndið hvernig fótboltinn getur verið stundum. En það er frábært fyrir okkur að komast í úrslitin."

Bellamy var einn besti maður Liverpool í gærkvöldi og hljóp eins og skrattinn væri á hælum hans allan leikinn. Markið hans var einstaklega laglegt, en þá fékk hann boltann í teignum, kom sér í góða skotstöðu og kláraði af stakri snilld framhjá Joe Hart.
Slapp
banner
banner
banner