Heimild: Sky
Kenny Dalglish stjóri Liverpool sagði sína menn hafa spilað frábærlega þegar þeir gerðu 2-2 jafntefli við Manchester City í gærkvöldi og komust í úrslitaleik deildabikarsins. Eftir 1-0 sigur á Etihad leikvangnum dugði jafnteflið, en það var Craig Bellamy sem jafnaði metin þegar stundarfjórðungur var eftir.
,,Mér fannst þetta vera frábær frammistaða. Þó svo að leikurinn hafi endað með jafntefli áttum við skilið að komast í úrslitin," sagði Skotinn.
,,Strákarnir stóðu sig eins og hetjur í kvöld og eiga mikið hrós skilið. Það hjálpuðust allir að við að koma okkur áfram."
,,Stuðningsmennirnir voru frábærir og þetta eru frábær verðlaun fyrir þá tryggð sem þeir hafa sýnt okkur. Þetta var frábært kvöld fyrir alla tengda Liverpool."
,,Bellamy var hreint út sagt ótrúlegur. Ef Manchester City er með annan leikmann eins og Craig sem þeir vilja ekki halda, þá vita þeir hvar við erum."





