Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   fim 26. janúar 2012 09:15
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Rafael van der Vaart til Manchester United?
Powerade
Þá er komið að helsta slúðrinu úr ensku blöðunum í dag en eins og vanalega er rétt að taka því sem að neðan stendur með góðum fyrirvara þar sem einungis er um slúður að ræða.



Chelsea hefur gefið varnarmanninum Alex leyfi til að fara til QPR en félagið ætlar hins vegar ekki að borga 83 milljónir punda fyrir Hulk framherja Porto. (Daily Mail)

Chelsea býst við að kaupa Kevin de Bruyne kantmann Genk í vikunni og félagið ætlar einnig að hækka tilboð sitt í Willian leikmann Shkhtar Donetsk. (Daily Star)

Rangers hefur hafnað sjö milljóna punda tilboði frá West Ham í framherjann Nikica Jelavic. (Daily Record)

Villareal hefur boðið 6,5 milljónir punda í Giovani dos Santos leikmann Tottenham en Granada hefur einnig áhuga. (Daily Mail)

Mark Hughes, stjóri QPR, er tilbúinn að bjóða fjórar milljónir punda í Hugo Rodallega framherja Wigan. (The Sun)

Hughes vonast einnig eftir að sannfæra Nedum Onuoha varnarmann Manchester City um að ganga í raðir QPR. (Daily Mirror)

Manchester United og Liverpool eru á eftir Jores Okore varnarmanni FC Nordsjaelland en danska félagið ætlar ekki að standa í vegi fyrir þessum 19 ára gamla leikmanni ef tilboð kemur í hann. (Inside Futbol)

Wigan hefur boðið 700 þúsund pund í John Verhoek sem er í láni hjá ADO Den Haag frá Rennes. (Daily Star)

Wigan segist ekki hafa gert tilboð í Nicky Maynard framherja Bristol City heldur segist félagið einungis hafa sent inn óformlega fyrirspurn um leikmanninn. (Daily Express)

Newcastle er á eftir Elia kantmanni Juventus. (Daily Mail)

Everton, Blackburn, Sunderland og Swansea, eru öll á eftir Adrien Silva leikmanni Sporting Lisabon. (Talksport)

Liverpool og QPR gætu reynt að fá Alexander Hleb en hann er að losna undan samningi hjá QPR. (Metro)

Manchester United er að skoða Dede varnarmann Vasco da Gama. (Caughtoffside.com)

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, er að undirbúa 20 milljóna punda tilboð í Rafael van der Vaart leikmann Tottenham en Ferguson ætlar einnig að láta leikmann í skiptum fyrir Hollendinginn í sumar. (Caughtoffside.com)

Theo Walcott mun ræða við Arsene Wenger um framtíð sína á næstu vikum. (Goal.com)

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, vill banna félögum í ensku úrvalsdeildinni að lána leikmenn eldri en 21 árs á milli sín. (Daily Mirror)
Slapp
banner