Heimild: BBC
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, segir að sumir leikmenn liðsins telji ómögulegt að vinna Barcelona á Nou Camp.
Real Madrid datt út úr spænska konungsbikarnum eftir 2-2 jafntefli í síðari leiknum gegn Barcelona á Nou Camp í gær en fyrri leikurinn fór 2-1 fyrir Börsungum.
Real Madrid datt út úr spænska konungsbikarnum eftir 2-2 jafntefli í síðari leiknum gegn Barcelona á Nou Camp í gær en fyrri leikurinn fór 2-1 fyrir Börsungum.
Leikmenn Real Madrid fengu átta gul spjöld í leiknum í gær en þar á meðal fékk Sergio Ramos tvö og þar með þrettánda rauða spjaldið á ferli sínum hjá Real. Mourinho var ekki sáttur við dómgæsluna og lét það í ljós í viðtali eftir leik.
,,Ég heyrði (leikmenn) segja að það sé ómögulegt að vinna hér," sagði Mourinho og beindi orðum sínum að dómaranum. Sjálfur segist Portúgalinn ekki hafa gert mistök í leikjunum tveimur.
,,Nei," sagði Mourinho aðspurður hvort hann hefði gert mistök. ,,Við spiluðum góðan leik, leikmennirnir áttu mjög góðan leik. Við komum hingað til að vinna. Við vissum að við vorum undir en við vorum ákveðnir og vildum vinna."
Mourinho segir að dómgæslan geri aðkomuliðum erfitt fyrir þegar þau heimsækja Nou Camp.
,,Ég hef spilað hér með Chelsea, Inter og Madrid nokkrum sinnum og þetta er ekkert nýtt. Ég óska Barcelona til hamingju með það sem þeir gerðu á Bernabeu í síðustu viku en ekki með að komast áfram," sagði Mourinho.




