Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fim 26. janúar 2012 10:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Twitter síða Joey Barton 
Joey Barton hendir bréfum frá enska sambandinu beint í ruslið
Joey Barton, leikmaður QPR, er allt annað en ánægður með bréf sem enska knattspyrnusambandið sendi honum í vikunni þar sem hann var varaður við því að setja færslur á Twitter um aðra leiki í úrvalsdeildinni.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem enska knattspyrnusambandið sendir Barton bréf og segir honum að passa sig á því hvað hann skrifar á Twitter. Barton er orðinn þreyttur á þessu og segir enska knattspyrnusambandinu að spara pappírskostnað með því að hætta að senda sér bréf.

,,Var að fá vikulegt bréf úr höfuðstöðvum enska knattspyrnusambandsins þar sem ég er varaður við. Að þessu sinni var það út af Twitter færslum þar sem ég giskaði á úrslitin í leikjum í Manchester," sagði Barton.

,,Samkvæmt enska knattspyrnusambandinu þá má ég ekki gefa mitt álit á því hvernig leikirnir gætu farið því að það gæti verið litið á það sem innanbúðar upplýsingar."

,,Þetta fólk er svo mikið úr tengslum við raunveruleikann að það er ótrúlegt. Hverju ætti spá mín fyrir leik að breyta um úrslit leiksins? Engu #beintíruslið"

,,Það skrýtna er að þeir hafa líklega sent mér í kringum 30 bréf síðan ég byrjað á Twitter. Þar er verið að eyða 30 bréfum....vinsamlegast hættið að senda."

Slapp
banner
banner
banner