Heimild: Sky
Bolton hefur keypt varnarmanninn TIm Ream frá New York Red Bulls en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Þessi 24 ára gamli leikmaður æfði með Bolton á síðasta ári og heillaði Owen Coyle stjóra félagsins.
Þessi 24 ára gamli leikmaður æfði með Bolton á síðasta ári og heillaði Owen Coyle stjóra félagsins.
Ream hefur nú skrifað undir þriggja og hálfs árs samning en hann á að hjálpa til við að fylla skarð Gary Cahill sem fór til Chelsea.
,,Við erum fyrst og fremst ánægðir með að hafa náð að tryggja okkur þjónustu Tim," sagði Owen Coyle stjóri Bolton.
,,Hann er bandarískur landsliðsmaður, leikmaður sem hefur orðið betri með hverju árinu og mun halda því áfram."


