Heimild: BBC
Wigan hefur gengið frá kaupum á kantmanninum Jean Beausejour en hann kemur til féalgsins frá Birmingham.
Þessi 27 ára gamli skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning en hann mun reyna að hjálpa botnliði Wigan í fallbaráttunni sem er framundan.
Þessi 27 ára gamli skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning en hann mun reyna að hjálpa botnliði Wigan í fallbaráttunni sem er framundan.
,,Roberto (Martinez, stjóri Wigan) sagði mér frá áætlunum félagsins og ég er mjög spenntur að koma hingað og hitta nýja liðsfélaga mína," sagði Beausejour.
Beausejou skoraði fimm mörk í 55 leikjum með Birmingham en hann kom til félagsins frá Club America á þrjár milljónir punda árið 2010.
Síðastliðið sumar reyndi Wigan að krækja í leikmanninn án árangurs en félagið náði núna að ganga frá kaupunum.


