Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fim 26. janúar 2012 11:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða QPR 
Nedum Onuoha til QPR (Staðfest)
QPR hefur keypt varnarmanninn Nedum Onuoha frá Manchester City en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Onuoha var í láni hjá Sunderland á síðasta tímabili en hann hefur ekki verið inni í myndinni hjá City í vetur.

Þessi 25 ára gamli leikmaður skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við QPR í dag en hjá félaginu hittir hann fyrir Mark Hughes fyrrum stjóra sinn hjá Manchester City.

,,Nedum er leikmaður sem ég þekki mjög vel," sagði Hughes eftir að gengið var frá samningum.

,,Hann er mjög fjölhæfur. Hann getur spilað sem miðvörður eða hægri bakvörður og er með góðan hraða. Hann er mjög góð viðbót við hópinn."
Slapp
banner
banner
banner