Heimild: Sky
Gabriel Agbonlahor, framherji Aston Villa, segir að önnur félög viti að hann muni ekki yfirgefa félagið.
Þessi 25 ára gamli leikmaður hefur skorað sjö mörk á tímabilinu en hann hefur haldið tryggð við Villa allan sinn feril þrátt fyrir að margir sterkir leikmennn hafi farið frá félaginu.
Þessi 25 ára gamli leikmaður hefur skorað sjö mörk á tímabilinu en hann hefur haldið tryggð við Villa allan sinn feril þrátt fyrir að margir sterkir leikmennn hafi farið frá félaginu.
,,Ég held að önnur félög viti að ég elska að spila með Villa. Ég held að það hafi aldrei komið tilboð í mig," sagði Agbonlahor.
,,Þeir vita að þetta er félagið sem ég vil vera hjá og það er erfitt að fá mig til að fara."
,,Þetta er eins hjá öðrum félögum sem hafa leikmenn sem eru félagsmenn út í gegn, eins og Steven Gerrard hjá Liverpool. Þeir bjóða ekki í okkur því þeir vita að við munujm ekki fara."




