Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fim 26. janúar 2012 13:30
Elvar Geir Magnússon
Gary Neville heldur ræðu fyrir ruðningslandsliðið
Gary Neville, fyrrum leikmaður Manchester United og enska landsliðsins, hefur verið fenginn til að halda ræðu yfir enska ruðningslandsliðinu. Ræðan er um tilfinninguna og stoltið sem fylgir því að spila fyrir hönd þjóðar sinnar.

„Ég vil minna leikmenn á hversu mikill heiður það er að vera einn af þeim sem valinn er til að leika fyrir þjóðina, þetta er stórt mál," segir Stuart Lancaster sem nýlega tók við þjálfun enska ruðningsliðsins.

„Þegar Gary Neville segir að það sé heiður þá er það heiður. Ef leikmenn skilja það þá mun þeirra hegðun verða enn betri. Gary hafnaði því aldrei að spila fyrir England. Hann er einn leikjahæsti landsliðsmaður frá upphafi."

„Landsliðið náði aldrei þeim árangri meðan hann spilaði sem hann vildi ná. Hann vill hjálpa leikmönnum að fá þjóðina með liðinu. Hann er fús til að hjálpa."
Slapp
banner
banner
banner