Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fim 26. janúar 2012 17:30
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Nicklas Bendtner frá í nokkrar vikur vegna meiðsla á andliti
Martin O'Neill, stjóri Sunderland, hefur staðfest að meiðsli Nicklas Bendtner eru verri en talið var í fyrstu.

Danski framherjinn nefbrotnaði og meiddist á andliti þegar Angel Rangel varnarmaður Swansea sparkaði óvart í höfuðið á honum í leik liðanna um síðustu helgi.

Bendtner var fluttur á sjúkrahús og eftir rannsóknir í vikunni er síðan ljóst að hann mun missa af næstu leikjum Sunderland.

,,Hann verður frá í nokkrar vikur sem er klárlega áfall fyrir okkur," sagði O'Neill við Sunderland Echo.

,,Hann er með nokkrar sprungur og við þurfum að bíða eftir að það lagist."
Slapp
banner
banner
banner